Tilraun til að spam-verja netföng með GIF mynd og CSS

Dæmi um netfang sem birtist á vefsíðu: mar hjá anomy.net


Prófaðu að afrita netfangið í dæminu hér að ofan inn í annað forrit - t.d. póstforrit, eða textaritil. Taktu eftir hvernig netfangið sem þú afritar eru annað en það sem þú sérð á skjánum. Prófaðu svo að skoða HTML kóða síðunnar.

Trikkið byggir á samspili HTML mörkunar og CSS útlitsreglna.

(ATH: Ég er að velta þessu fyrir mér sem lausn í tilfellum þar sem kúnninn vill alls ekki birta netföng á vefnum út af spam hræðslu, og notendahópurinn er fyrst og fremst íslenskur.)

Kostir

  1. Netfangið er sýnilegt á óbrengluðu formi.
  2. Netfangið er aðgengilegt blindum og þeim sem nota einfalda vafra á hálf-brengluðu formi.
  3. Snjallir netfanga leitarróbótar sem keyra Javascript og CSS kóðann á síðunni og lesa textann beint úr DOM trénu, sjá samt brenglað netfang.
  4. ...?

Gallar

  1. Ekki er hægt að smella á vísunina og senda tölvupóst beint. (Hins vegar er hægt að láta netfangið vísa á síðu með innsláttareyðublaði sem sendir póst beint á viðkomandi netfang.)
  2. Blindir notendur "sjá" aldrei óbrengluðu útgáfuna af netfanginu (HAL upplesarinn styður ekki @audio stílblöð).
  3. ...?

Komment?


Umsjón: Már Örlygsson