"Kríonistar" Cc
Ég horfði um daginn á danska heimildarmynd í RÚV um samfélag
"Kríonista" í Bandaríkjunum. Þátturinn fjallaði fyrst og fremst um
meðlimi í Alcor samtökunum (The Alcor Life Extension Foundation), en
þetta fólk greiðir mánaðarlega trygginga- og þátttökugjöld og á
móti mæta sérfræðingar samtakanna á staðinn þegar fólkið deyr.
"hraðfrysta líkið á meðan það er enn volgt og vista það í öruggri frystigeymslu um ókomna tíð - eða þar til læknavísindunum hefur fleygt svo fram að hægt sé að lífga frosið fólk frá dauðum og tryggja því eilíft líf."
dót er þetta bla bla
"hraðfrysta líkið á meðan það er enn volgt og vista það í öruggri
frystigeymslu um ókomna tíð - eða þar til læknavísindunum hefur
file:///C:/Documents%20and%20Settings/Administrator/Desktop/My%20Stuff/websites-work/mar.anomy.net/Copy%20of%202004-02-newlook2/entry.htm
fleygt svo fram að hægt sé að lífga frosið fólk frá dauðum og
tryggja því eilíft líf."
Þarna var talað við hámenntaða vísindamenn sem stunda rannsóknir á þessu sviði, sem og óbreytta meðlimi samtakanna. Hluti meðlimanna höfðu flutt sig um set til að vera í öruggri nálægð við frystihúsaðstöðu samtakanna - ef ske kynni að dauða þeirra bæri brátt að.
Vísindamenn komu fram og bentu á að í langan tíma eftir að fólk er úrskurðað látið eru allar frumur líkamans í raun lifandi, og að tíminn sem læknar á sjúkrahúsum hafa til að lífga fólk við úr hjartastoppi og andnauð lengist sífellt samfara framförum í læknavísindunum. Þeir vildu meina að mörk lífs og dauða lægju á mjög gráu svæði og nákvæm staðsetning þeirra réðust fyrst og fremst af tæknilegri getu/þekkingu læknavísindanna á hverjum tíma.
Mér fannst athyglisvert að sjá hversu fullkomlega sambærileg hegðun og heimsmynd þessa fólks er hegðun og heimsmynd ýmissa trúarhópa, s.s. kristnna manna. Samt minntist ekki ein sála af þeim sem rætt var við í þættinum svo mikið sem einu orði á Guð, yfirnáttúru, eða annað það sem sumir vilja meina að einkenni, eðli málsins samkvæmt, öll trúarbrögð.
Hvað segja vantrúaðir? Má líta á samfélag "kríonista" sem nothæft innlegg í umræðuna um hvar mörkin liggja milli trúleysis og trúarbragða?
Ég hefði gaman að því að sjá svör frá Matta og Birgi, og einnig að heyra sjónarmið einhverra af spekúlöntunum á Annáll.is.
Már Örlygsson




Svör frá lesendum (5)
Matti Á. svarar:
Tja, ég sé ekki betur, útfrá því sem þú segir hér, en að þetta fólk sé mekanistar (sjá, http://www.vantru.net/2004/01/12/13.00/ )
"Má líta á samfélag "kríonista" sem nothæft innlegg í umræðuna um hvar mörkin liggja milli trúleysis og trúarbragða?"
Mitt hógværa mat: Nei.
31. janúar 2004 kl. 21:11 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Jújú, þau eru "mekanistar".
Skipting fólks upp í hópa "mekanista" og "vítalista" getur vissulega verið gagnleg en hún kemur samt ekki í stað umræðunnar um félagslegar birtingarmyndir "trúar" og "trúarbragða" - en það má segja að það sé punkturinn sem ég var að reyna að velta upp með þessari færslu.
Því er kannski rétt að velta upp annari spurningu: Mæla einhver góð rök gegn því að rökræða og skilgreina "trú" og "trúarbrögð" líka sem félagsleg fyrirbæri ... eða er inntakið það eina sem skiptir máli?
P.S. Þið Vantrúarmenn virðist reyndar jafn áhugasamir og ég um félagslegt hlutverk og félagsleg áhrif "trúar" og "trúarbragða" því eftir því sem ég fæ best séð, þá beinist gagnrýni ykkar oftar en ekki að meintum neikvæðum félagslegum og menningarlegum áhrifum þess að stór hluti samfélagsins er uppfullur af "ranghugmyndum" eða "veirusýkingum hugans".
31. janúar 2004 kl. 22:12 GMT | #
Jósi svarar:
Hmmm.. Ætti þetta ekki að skrifast með Y? Krýonistar? Ég held að orðið sé dregið af orðinu "Crypt"....
1. febrúar 2004 kl. 01:31 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Mig minnir endilega að RÚV hafi skrifað orðið með "i". Held mig við það. Þetta er annars hið versta orðskrípi.
1. febrúar 2004 kl. 01:37 GMT | #
Hrafnkell svarar:
Dregið af gríska orðinu Kryos sem þýðir kalt var sagt í þættinum.
1. febrúar 2004 kl. 11:34 GMT | #