Fúskað á vegum Íslandspósts

Skrifað 5. ágúst 2007, kl. 13:31

Þetta byrjaði allt með póstpoka í garði.

Á fimmtudaginn síðasta fór Stína með krakkana í morgungöngutúr. Þegar hún gekk niður götuna heima sá hún póstpoka liggja í garði hjá nágrönnunum. Um leið rámaði hana í að hafa séð þennan rauða poka liggja þarna daginn áður, án þess að hafa gefið því frekari gaum. Hún opnaði pokann og sá að hann var fullur af pósti - bréfum, bögglum, álagningarseðlum og tímaritum - stílað á íbúa í Sangarholti, Stórholti og Meðalholti.

Póstpokinn á tröppunum heima

Stína hringdi strax í Íslandspóst að láta vita af þessum skandal. Maðurinn sem svaraði hjá Póstinum leit málið mjög alvarlegum augum og sagði að pokinn yrði sóttur þegar í stað!

Þar með áleit Stína málinu lokið.

Á föstudagsmorgun, eftir mikla rigningarnótt, fór Stína aftur út með krakkana í göngutúr, og varð þá aftur litið inn í garðinn hjá nágrönnunum. Og viti menn, pokinn var enn á sama stað fullur af pósti.

Hún hringdi því aftur í Íslandspóst og tilkynnti aftur um að pokann, og benti þeim á að hún hefði hringt út af þessum sama poka daginn áður, og þá hefðu þeir ætlað að sækja hann strax. Konan sem svaraði hjá Póstinum leit málið mjög alvarlegum augum og sagði að pokinn yrði sóttur þegar í stað!

Þar með áleit Stína málinu loksins lokið.

Þegar ég kom heim um sjö leytið um kvöldið var póstpokinn enn ósóttur! Þar sem það var föstudagskvöld ákvað ég að kippa pokanum inn í stigaganginn hjá okkur, svo eitthvað partípakk færi ekki að leika sér að honum.

Á laugardagsmorgun ákvað ég svo að taka málin í mínar hendur. Við feðgarnir skófluðum í okkur morgunmatnum, klæddum okkur í föt og eyddum tæpum tveimur tímum í að bera út póstinn í töskunni.

Við sungum "Pósturinn Páll" og Garpur æfði sig í að lesa tveggja stafa tölur og þekkja nöfn fólks á umslögum og útihurðum. Jafnframt útskýrði ég fyrir honum að það er ókurteisi að horfa inn í íbúðir hjá fólki gegn um bréfalúguna.

Garpur setur umslög í bréfalúgu

Mér varð hugsað á heimleiðinni að þetta flokkaðist sem hið argasta fúsk.

P.S. Ef Íslandspóstur fær skyndilega áhuga á að fá pósttöskuna aftur, þá liggur hún í stigaganginum í Stangarholti 6.

(Þeir sóttu töskuna í morgun, 7. ágúst)

(P.P.S. Netfangið mitt er neðst á síðunni.)

Uppfært: Stöð 2 fjallaði um málið í fréttainnskoti að kvöldi næsta þriðjudags á eftir (sjá myndskeið). Garpi þótti dáldið gaman að sjást í fréttunum.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Óli Gneisti (Vélrænar þýðingar)
  • Sindri (Vélrænar þýðingar)
  • Just To Say (The Elegant, Unobtrusive Javascript Workaround for "Click to activate and use this control")
  • Finnur (hCalendar og hCard ófýsilegir staðlar fyrir íslenska vefi?)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)