A je to!
Það kom að því að hippatímabilið liði undir lok á okkar heimili. Dánardægrið, 8. maí síðastliðinn. Við eigum núna bíl. Ljósgráan Skoda Octavia, árgerð 2000, með 1.6 lítra vél, hlægilega lítið ekinn og í topp ástandi.
Skutbíl. (Þar fóru síðustu leifarnar af hippakúlinu.)
Eiginkonan var snarlega sett í að læra hvernig skipt er milli nagla- og sumardekkja. Á meðan sá eiginmannsónefnan um að klæða sumardekkin úr plastpokunum - og fékk í kjölfarið ómetanlegt tækifæri til að sýna hæfileika sína með tonnatakið eftir að hafa misst eitt þeirra ofan á einn plasthjólkoppinn.
Cue: music
Núna stunda ég það að bjóða mér í kaffi til allra karlmannlegustu vina minna og tala við þá um bíla, og vélaviðgerðir, og kertaskiptingar. Alls kyns svoleiðis karlmannlega hluti. (Veik tilraun til að endurbyggja kúlið.)
Þessa dagana má einna helst sjá mig úti á stétt með litla fingur út í loft með lítinn pensil í hönd að bletta í verstu grjótkastsgötin í lakkinu. Vinsamlega ekki læðast aftan að mér, það má engu skeika, því besservisserinn í lakkdeildinni hjá N1 seldi mér of dökkan tón, þrátt fyrir hógvær mótmæli undirritaðs.
(Þó ég viti ekki rass um bíla, þá hafa 15 ár í tölvugrafík og BA gráða frá LHÍ tryggt mér alveg þokkalegt litaskyn.)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
Hrafnkell svarar:
Iss það er hippalegt að eiga bara einn bíl.
22. maí 2007 kl. 10:04 GMT | #
Jósi svarar:
Iss, næst farið þið örugglega að fara í sturtu og nota svitalyktareyði ;-)
Ökutækið mitt eyðir annars rétt rúmum lítra á hundraðið, hvernig er ykkar?
22. maí 2007 kl. 10:38 GMT | #
Bragi svarar:
Már minn góður.
Ég er nú hræddur um að ég þurfi að skamma þig lítillega fyrir gjörðir þínar. Þú blettar ekki bílinn þinn utandyra. Þetta á að gera innandyra við hita yfir tuttugu gráður á celsíus skala. Annars þornar lakkið ekki nægilega vel og ryð getur myndast undir því og smogið inn um loftholur sem myndast, ég skal hins vegar bjóðast til þess að hjálpa þér vð að massa lakkið. Annars er ég býsna ánægður með val þitt á bíl og bið þig velkominn í Volkswagen fjölskylduna. Eins og kunnugir vita eru bæði Volkswagen(flestir) og Skoda framleiddir í Tékklandi.
Einnig má benda á að nýrri Skoda bílar eru með þeim sparneytnustu sem völ er á. Þ.e. díselútgáfur af Skoda. Stórir fjölskyldubílar sem eyða eingöngu 4 lítrum á hundraðið þegar aðrir bílar eru að fara með yfir tíu af sömu stærð. Munurinn á þessu miðað við 15.000 kílómetra akstur á ári og 120 króna bensínverð yrði þá um 108.000,- krónur.
Ekki það að ég hafi neinn áhuga á bílum...
22. maí 2007 kl. 20:00 GMT | #
Árni Hermann svarar:
Kúl. Ég þarf að skipta um bremsuklossa og viftureim við tækifæri. Við getum kannski deilt karlmannalegum ráðum eftir ævintýri okkar?
22. maí 2007 kl. 23:21 GMT | #
Már svarar:
Árni, það er deit! :-)
Jósi, "ökutækið" þitt er það sem venjulegt fólk kallar vespu. Ca. 10-11 lítra munur á bensíneyðslu er líklega það atriði sem sker þessi tvö ökutæki hvað minnst í sundur.
Bragi, 20 gráður? Iss þú ert bara vænisjúkur lakkefna-fúndamentalisti! Hmm... blessaður sérfræðingurinn hjá N1 minntist ekkert á þetta atriði. Hvað þýðir annars að "massa"? (e-mail er fínt)
Varðandi nýju sparneytnu Skódana, þá fara þeir með ~4 lítra í sparkasturskeppnum, en í eðlilegum borgarakstri er eyðslan þó nokkru meiri. Þeir fást líka bara glænýjir eða eins árs gamlir max (fyrstu týpurnar birtust á markaðnum hér í fyrra) og kosta þess vegna svo miklu meira en eldri árgerðir, að væntur bensínsparnaður yfir líftíma bílsins nær trauðla að brúa það bil. Við ætlum að spara bensín með því að keyra bílinn lítið, og lofum að næsti bíll sem við kaupum verður annað hvort mega sparneytinn dísill - eða rafbíll.
23. maí 2007 kl. 00:01 GMT | #
Stefán Baxter svarar:
Það á eftir að fara fyrir þér eins og Bubba með þessu áframhaldi. Ég fylgist spenntur með. :) Sjáumst á rúntinum.
23. maí 2007 kl. 11:24 GMT | #