Græjaður gæi (og svart iPod hulstur til sölu)
Fjölskyldan skrapp til Englands um páskana. Þar braut ég odd af oflæti mínu sem iPod þverhaus og keypti svartan 80GB iPod (á Amazon.co.uk, nennti ekki að standa í búðarölti).
Með honum keypti ég svart iSkin eVo3 sílíkon hulstur sem er í alla staði frábært nema að það passar bara á 30GB iPod spilara. (Aulinn ég vissi ekki að það væri fýsískur stærðarmunur á 30 og 80GB útgáfunum.)
Þannig að ef einhver á 30GB iPod Video, og vantar svarta sílíkon hulsu til að rispu- og höggverja hann, þá á ég eina slíka á lausu í upprunalegum umbúðum.
Svo keypti ég lítinn og ljótan, en mjög fúnksjónal FM sendi sem tekur við hljóðmerki um mini-jack tengil. Þetta er hin mesta snilldar græja og nú get ég (og allir nágrannar mínir!) hlustað á tónlistina úr stofutölvunni (eða iPoddinum) í venjulegu útvarpstæki stilltu á FM 89,5 (sú bylgjulengd virðist sæmilega "þögul" í Reykjavík).
Þetta er sér í lagi sniðugt ef maður vill geta "flutt tónlistina með sér" milli hæða/herbergja án þess að skrúfa græjurnar í stofunni alla leið upp í 11.
Að endingu keypti ég litlar hi-fi græjur til að hafa í svefnherberginu okkar (og hlusta á tónlist úr FM sendinum ... eða iPod-inum), en þær eru ekki nægilega spennandi til að ég nenni að blogga um þær.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (2)
Freyr svarar:
Fyndið. Var að kaupa 30GB iPod síðustu helgi, eftir svipað þverhausa tímabil og þú lýsir. Emilaðu mig og sjáum ekki til hvort að ég geti aðstoða þig við að losna við þetta hulstur.
20. apríl 2007 kl. 13:24 GMT | #
Stefán Baxter svarar:
Sem diggur lesandi til margra ára lýsi ég frati í smáauglýsingavæðingu þessa bloggsvæðis sem átt hefur sér stað undanfarið. Tel samt við hæfi að lýsa eftir fyrrum eiganda svæðisins sem átti það til að senda reglulega frá sér athyglisverða pistla um tækni og málefni líðandi stundar.
Annars gæti ég alveg notað svona hulstur á svart 30gb spilarann minn.
Kveðja, -Stefán
20. apríl 2007 kl. 17:44 GMT | #