Vinsamleg skilaboð til þeirra sem setja spurningamerki við úthýsingu klámmógúlanna

Skrifað 23. febrúar 2007, kl. 23:35

Þið sem teljið eitthvað óeðlilegt að beita lítt dulbúnum stjórnvaldsaðgerðum til að hefta komu fólks úr klámbransanum hingað til lands ... þið augljóslega:

  • misnotið börn í laumi
  • hatið frelsið
  • eruð á móti framförum
  • styðjið hryðjuverkamenn
  • gangið í ullarpeysum
  • búið í 101.

Skammist ykkar ógeðin ykkar!

Ég meina, "[þetta fólk] er á þessum tiltekna tíma komið í ákveðnum tilgangi, sem er andstæður því sem hentar íslenskum stjórnvöldum um þessar mundir"...


Svör frá lesendum (4)

  1. Jenný svarar:

    sko... stundum er kaldhæðnin svo mikil að ég skil bara ekkert hvað þú meinar (og er þó þekkt fyrir kaldhæðni)... hvað meinaru??

    26. febrúar 2007 kl. 12:55 GMT | #

  2. Már svarar:

    öhm... í handbók grínistans kemur skýrt fram að grínregla númer tvö er "aldrei útskýra brandarann" ... en fjandinn hafi það, ég læt vaða samt sem áður:

    Þessi bullet-listi inniheldur þekktar árásir á málstað fólks sem hefur mótmælt yfirgangi stjórnvalda í ýmsum málum á síðustu árum (Íraksstríðið, Kárahnjúkar). Sá sem helst sker sig úr er sá fyrsti, en hann er klassísk undirliggjandi (þögul) ásökun sem skellt er fram þegar fólk reynir að ræða málefni sem tengjast klámi á hlutlægan og yfirvegaðan hátt.

    Síðasta setningin er bein tilvitnun í ummæli fyrrverandi forsætisráðherra þegar hann lét loka landinu fyrir kínverskum leikfimiklúbbi.

    26. febrúar 2007 kl. 13:32 GMT | #

  3. Siggi Palli svarar:

    Þetta mál hefur aðallega vakið hjá mér furðu og sýnt fram á hugmyndafræðilega (ég því miður hef ekki betra orð) hræsni sem við íslendingar búum við.

    Málið er að við virðumst sætta okkur við þetta. Fyrir utan einhverja sérvitra netnörda og vini þeirra sem röfla út í loftið en sitja annars aðgerðarlaus. Þannig að þetta er eiginlega bara gott á okkur.

    Mér er oft hugsað til bókanna Animal Farm og 1984 þegar ég sé svona fréttir og velti því fyrir mér hvað þarf að ganga langt á okkar hlut áður en allt springur? Hvað á eftir að gera mig nógu reiðan til að gera eitthvað?

    Nú þegar borgum við eina af hæðstu bankavöxtum í heimi, hæðsta matarverði í heimi, hæðstu tekju og vöruskatta í heimi. Samkvæmt stjórnarskrá eigum við að fá fría læknaþjónustu sem við fáum ekki og fría skólagöngu sem við fáum ekki. Hér á að ríkja trúfrelsi en ríkið MOKAR peningum í hina lútersku kirkju á meðan önnur trúfélög þurfa að standa á eigin fótum. Hér á að ríkja jafnrétti en launa munur karla og kvenna er ennþá 34%. Hér á að ríka skoðanafrelsi en friðsemdar mótmælendum og fólk sem gerir alsberumyndir er heinlega vísað úr landi.

    Svar Íslendinga: "Æ, svona er þetta bara."

    Ég verð að segja: "Já, Már minn, ég skammast mín."

    16. mars 2007 kl. 16:11 GMT | #

  4. Línuaðdáandi svarar:

    Einhvernveginn datt ég inn á bloggið þitt og sá tregan varðandi Línuna eða La Linea sendi ég þér þennan link

    http://www.tv5.org/TV5Site/la_linea/

    kveðja frá Línuaðdáanda

    16. mars 2007 kl. 19:58 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)