Þennan dag fyrir ári

Skrifað 23. febrúar 2007, kl. 23:15

...skaut lítil manneskja upp kollinum á miðju stofugólfinu okkar.

Þetta er búið að vera viðburðaríkt ár - ekki alltaf auðvelt, en samt ótrúlega gefandi.

Úlfrún byrjaði að labba um allt fyrir rúmum tveimur vikum. Það var eins og þá fyrst sæi hún tilganginn með þessum ferðamáta.

Á þrettándanum (í afmælisveislu hjá Óðni) tók hún fyrsta skrefið, og síðan þá hefur hún verið að labba smá og smá en það var eins og hún gerði það bara þegar hún gleymdi að skríða. Líkamlega getan var augljóslega til staðar, en viljinn/áhuginn enginn.

Þessi brosmilda og skemmtilega hnáta er eins árs í dag.

Megi hún lengi lifa!


Meira þessu líkt: Úlfrún.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)