Mér finnst Vodafone dýrir

Skrifað 12. janúar 2007, kl. 01:24

Við Stína höfum verið dyggir viðskiptavinir Vodafone frá upphafi. Þar áður skiptum við við Íslandssíma, og þar áður við Tal. Við vildum alltaf versla við samkepnnisaðila einokunar- og markaðsrisans Landssímans, og svo sakaði ekki að Vodafone/Íslandssími/Tal bauð yfirleitt tiltölulega hagkvæma þjónustu.

Fyrir um ári síðan skráðum við okkur í pakkalausnina "og1" hjá Vodafone, enda virtist það í upphafi vera tiltölulega hagkvæmur díll. Undanfarið hef ég hins vegar farið að efast um að sú sé ennþá raunin.

Skoðum aðeins tvö dæmi um áætlað mánaðarverð á fjarskiptaþjónustu:

Dæmi A - allt hjá Vodafone (núverandi staða)
Liður Þjónustuleið Verð (ca.)
GSM (Már) Vodafone og1 áskrift, ókeypis í Stínu og heim 1.310 kr.
GSM (Stína) Vodafone frelsisáskrift, ókeypis í Má 1.150 kr.
ADSL Vodafone og1, 8Mbps + ótakmarkað niðurhal 4.990 kr.
Heimasími Vodafone og1, ókeypis í heimasíma og til mömmu í Englandi 2.550 kr.
Áætlað heildarverð: 10.000 kr.
Dæmi B - sama þjónusta keypt í lausu (möguleg lausn)
Liður Þjónustuleið Verð (ca.)
GSM (Már) SKO, ókeypis í Stínu (o.fl.) 1.000 kr.
GSM (Stína) SKO, ókeypis í Má (o.fl.) 1.000 kr.
ADSL BTnet, 8Mbps + ótakmarkað niðurhal 3.990 kr.
Heimasími Vodafone, ekkert ókeypis 2.010 kr.
Áætlað heildarverð: 8.000 kr.

Dæmi B (þjónustan keypt í lausu frá mismunandi aðilum), kostar ca. 24.000 kr. minna á ári, en dæmi A (pakkalausnin Vodafone og1). Samt er ég að gera ráð fyrir jafn mikilli (eða a.m.k. sambærilegri) notkun á þjónustunni.

Samt er dæmi B sett saman úr þjónustuleiðum seldum á fullu verði, en Vodafone og1 dæmið (A) er pakki sem á að gefa "verulegan sparnað og rausnarlegan ávinning".

Er nokkuð skrýtið að ég sé alveg við það að hrökklast frá Vodafone með megnið (ca. 80%) af mínum fjarskiptum?

Ég fæ ekki betur séð en að "Vodafone og1" sé pakki fyrir aula.

P.S. Í dæmi B geri ég ráð fyrir ca. 500 kr. lækkun á kosnaði vegna heimasímans, vegna þess að við munum færa slatta af núverandi heimasímanotkun yfir á SKO farsímana til að fullnýta 1.000 kr. mánaðarlegu lágmarksnotkunina á þeim.

P.P.S. Já ég átta mig algjörlega á íróníunni í því að hrökklast frá Vodafone til tveggja dótturfyrirtækja Vodafone.


Svör frá lesendum (6)

  1. Hulda Axelsd svarar:

    Hey þetta er alveg magnað en mig hefur líka grunað þetta því mér finnst þetta og1 skítdýrt, fann engan mun þegar ég fór í það apparat....hmmmmmmmmmmmm

    12. janúar 2007 kl. 15:19 GMT | #

  2. Hallur svarar:

    Mnurinn liggur í því að hjá SKO og BTNET er nákvæmlega engin þjónusta ef eitthvað klikkar... það er þjónusta hjá Voðalegt.

    Ef við skoðum Símann þá færðu GSM áskrift á 990 pr. númer og með betri leið hringir þú frítt í slatta af mínútum og sendir slatta af sms um milli allt að 5 númera. Internet tenging með 8mb, og ótakmörkuðu niðurhali kostar 5.990 (kostar 500 kr. meira að fá 12mb). Tölvusíminn hjá símanum kostar 990 á mánuði og svo frítt að hringja í alla síma innanlands hvar sem þú ert í heiminum. Miðað við 2 GSM þá eru þetta 8.960 á mánuði. En þar er líka full þjónusta.

    18. janúar 2007 kl. 20:26 GMT | #

  3. Már svarar:

    Hallur:

    1. Ég get ekki sérstaklega hrósað þjónustunni hjá Vodafone. Hún hefur verið sein að svara, í litlu magni, og allt of oft illa upplýst. Þeir skulda mér að auki núna ca. 12.000 kr. sem þeir ofrukkuðu af kortinu mínu í lok september.

      Ég er ekki að segja að mér þyki þjónustan slæm (þjónustufulltrúarnir hafa alltaf verið mjög kurteisir og notalegir í viðmóti), heldur bara að mér finnst þessi þjónusta ekki tvö þúsund króna virði á mánuði.

    2. Hjá Sko hringi ég og SMSa tvöfalt meira fyrir þúsund kallinn minn heldur en í "betri" leið Símans. Sú leið er eflaust betri en eitthvað (?), en hún er ekki ódýrari en SKO áskrift. Umframnotkunin er einnig að meðaltali slatta ódýrari hjá SKO.

      Svo gleymir þú alveg að reikna með heimasímann, en áskrift að honum er forsenda fyrir ADSL tengingunni. Heimasímaáskrift hjá Símanum er dýrari en hjá Vodafone.

      Tölvusíminn sem þú nefnir er (eftir því sem ég fæ best séð) ekki staðgengill venjulegs heimasíma, heldur viðbótarþjónusta - gíruð inn á fólk sem er mikið á flakkinu í útlöndum. Tölvusíminn er í raun bara mun dýrari útgáfa af SkypeOut og SkypeIn miðuð á íslenskan markað.

      Af tvennu illu er okkar núverandi Vodafone þjónustuvöndull þó ódýrari en sambærileg þjónusta frá Símanum. Ég var búinn að kanna það áður en ég bloggaði þetta.

    Ath. Ég er ekkert fúll eða reiður út í Vodafone. Þeir hafa selt mér umsamda þjónustu á umsömdu verði (fyrir utan þessa 12.000 kr auka kortafærslu í september). Ég sýni þeim fyrirtækjum sem ég skipti við yfirleitt mjög mikla tryggð, en sem aktífur og upplýstur neytandi þá verð ég að horfast í augu við og bregðast við því ef sú þjónusta sem ég þarf, býðst annars staðar á áberandi hagkvæmara verði.

    18. janúar 2007 kl. 21:46 GMT | #

  4. Inga lesandi svarar:

    Ég verð bara að miðla af nískuráði sem notuð er á mínu heimili. Við hjónin erum ekki "ókeypisnúmer" hvors annars heldur er ástkær ókeypis númerið mitt og þegar hann hringir í mig þá skelli ég á og hringi til baka. Hann notar sitt ókeypisnúmer til að hringja í vin sinn.

    25. janúar 2007 kl. 22:24 GMT | #

  5. Már svarar:

    Inga lesandi, í gamla daga þegar við Stína vorum fátæk í skóla, þá prófuðum við þessa brellu um tíma. Hún virkar alveg, en okkur finnst hún helst til mikið "mojj".

    Hún er ódýrari en að sama skapi flóknari.

    25. janúar 2007 kl. 23:45 GMT | #

  6. Snæfeld svarar:

    SKO og BT-net er algjör snilld Svo er SKO komið með netsíma. Einn helsti kosturinn við hann er sá að frændi þinn búsettur í útlöndum getur notað hann þar og hringt frítt í SKO GSM símann þinn á Íslandi.Frábært alveg!!!

    2. febrúar 2007 kl. 09:20 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)