Gott Windows forrit til að afrita og samstilla skráarsöfn

Skrifað 9. janúar 2007, kl. 19:50

Ég var nýverið að leita mér að þægilegu forriti til að a) viðhalda öryggisafriti af tugþúsundum skráa á utanáliggjandi hörðum diskum og b) samstilla (synchronize ) tvö risastór skráarsöfn sem hvort um sig kunna að hafa breyst.

Forritið þarf ekki bara að fatta hvaða skrár hafa bæst við og hverjar hafa breyst, heldur líka hvaða skrám hefur verið eytt og fjarlægja þær þegar við á.

Fullsync

Eftir smá leit fann ég þetta ágæta og einfalda forrit Fullsync, sem mér sýnist að geri þetta allt og sé bara hreinn draumur í dós - og er ókeypis, og frjáls hugbúnaður.

Svo er Fullsync með einhvers konar "remote server" tengimöguleika sem mér sýnist að bjóði upp á að framkvæma öryggisafritun/samstillingu yfir internetið milli tveggja venjulegra Windows tölva - með örfáum músarsmellum. (Ég á eftir að sannreyna að þetta virki.)

Ef þessi netafritun er jafn einföld og mér sýnist, þá ætti ég meira að segja að geta lóðsað mömmu gömlu í Englandi í gegnum það að setja upp með mér þver-Atlantshafs-öryggisafritunarkerfi dauðans!

:-)


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)