Jöfnun tónstyrks milli laga í Winamp
Ég rakst um daginn á svoldið sniðugt í Winamp, sem heitir "replay gain" og snýst um það að Winamp (eða annað álíka forrit) mælir hljóðstyrkinn í hverju og einu lagi í tónlistarsafninu manns, og skrifar niðurstöðurnar fremst í hljóðskrána, en þær upplýsingar getur Winamp (og ýmis önnur tónlistarforrit) notað til að "leiðrétta" (jafna) tónstyrkinn milli ólíkra laga af ólíkum plötum.
Þessi snilldar fítus sparar manni að þurfa, sí og æ, að hlaupa til í ofboði og hækka eða lækka í græjunum þegar maður spilar samtíning af lögum héðan og þaðan.
Til að nýta þennan möguleika þar að gera tvennt:
Láta Winamp mæla tónstyrkinn á lögunum í lagasafninu
Þú velur þau lög sem þú vilt láta mæla tónstyrkinn í, hægri-smellir á lögin, og velur "Send to: -> Calculate Replay Gain". (Ath. mælingin getur tekið þó nokkurn tíma.)
Segja Winamp að leiðrétta afspilunartónstyrk laganna í takt við mælinguna
Opna valmyndina "Options -> Preferences" og velja "General Preferences -> Playback" og haka þar undir í reitinn "Use Replay Gain".
Ég er núna í óða önn að láta Winamp mæla öll lögin í tónlistarsafni heimilisins, og á eftir að skoða betur hvaða áhrif þetta hefur, og hvaða áhrif aðrar stillingar kunna að hafa á afspilunina.
Már Örlygsson





Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.