Firefox 2.0: Stillingar og viðbætur
Viðbætur og stillingar sem ég nota og/eða mæli með.
Gagnlegar stillingar (Tools -> Options...):
- Main -> Startup -> When Firefox Starts : Show my windows and tabs from last time
- Advanced -> General -> Search for text when I start typing : On
- Advanced -> General -> Languages -> Choose : Veldu þín tungumál
Gagnlegar "faldar" stillingar (about:config):
- browser.tabs.tabMinWidth : 75
- browser.tabs.closeButtons : 0
- network.prefetch-next : False
- browser.cache.memory.capacity : 10000 (Ath. það þarf að búa þessa stillingu til með því að hægri-smella, velja "New -> Integer" og slá inn nafnið á henni)
browser.chrome.toolbar_tips : False<-- EVIL!!- browser.urlbar.hideGoButton : True
- network.http.pipelining : True
- network.http.proxy.pipelining : True
Almennt góðar viðbætur:
- Íslenskt stafsetningarorðasafn
- Download Statusbar
- DragDropUpload
- Save Text Area
- Adblock
- DownThemAll
- Permit Cookies
Góðar vefforritara viðbætur:
- Tamper Data
- LiveHttpHeaders (bíð eftir uppfærslu fyrir Firefox 2.0)
- HTML Validator
- Web Developer
- FireBug
- Console2
Jæja, er ég að gleyma einhverju mikilvægu?
Meira þessu líkt: Hugbúnaður.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (8)
Tóró svarar:
Kannski IE switchernum sem var verið að sýna mér í gær: IE Tabs.
Er ekki farinn að nota af neinu viti, en virðist góð hugmynd.
26. október 2006 kl. 09:28 GMT | #
Borgar svarar:
Mér finnst Html Validator mjög þægilegur. Það fer lítið fyrir honum en hann gerir það fljótlegt að fá upp lista af villum í markupi.
26. október 2006 kl. 10:15 GMT | #
Már svarar:
Borgar, rtfa! ;-)
26. október 2006 kl. 10:18 GMT | #
Gummi svarar:
Ég er alvarlega háður Sage.
26. október 2006 kl. 10:24 GMT | #
Tóró svarar:
Gleymdi einu: Ég er hrifinn af FoxyTunes sem leyfir manni að stjórna tónlistarspilaranum sínum (styður alla stóru strákana).
Fínt til að kíkja niður í botninn á vafraglugganum og sjá hvaða lag er í gangi, pása tónlistina, hækka/lækka, eða hoppa yfir í næsta lag.
Nýja útgáfan er með einhvern stuðning við album covers, en ég hef ekkert prófað að nota það.
26. október 2006 kl. 10:54 GMT | #
Borgar svarar:
Astfgl! Drekka minna kaffi á daginn Borgar. :-/
Annars tók ég eftir alveg killer atriði í dag þegar Firefox endurvakti session eftir krass (ég var að fikta). Þetta gerði hann fullkomlega... með réttri stöðu á textanum sem ég hafði verið að vélrita í form!
26. október 2006 kl. 18:52 GMT | #
Gunnar Sturla svarar:
Gætirðu kannski útskýrt aðeins hvað allar þessar stilligar gera? Þó það sé auðvitað hægt að breyta þessu aftur er skemmtilegra að vita hvað maður er að gera :)
3. nóvember 2006 kl. 17:35 GMT | #
Már svarar:
Flestar stillingarnar skýra sig sjálfar. Þessar gera það þó vísast ekki:
network.prefetch-next : False- Slekkur á því að Firefox sækir sjálfkrafa síður sem hann telur líklegt að þú munir smella þér á frá núverandi síðu.Falsestillingin dregur úr minnis-, örgjörva- og bandvíddarnotkun, en veldur því að einstaka síður eru örlítið lengur að hlaðast inn.browser.cache.memory.capacity : 10000- Dregur aðeins úr minnisnotkun vafrans. Sjálfgefna gildið er víst15000, en fyrir tölvur með lítið vinnsluminni (t.d. í kringum 256MB) hef ég séð mælt með enn lægri tölu,5000.network.http.pipelining : Trueognetwork.http.proxy.pipelining : Truestytta til muna tímann sem það tekur að sækja vefsíður með mörgum myndum, Javascript og CSS skrám. Fræðilega ku vera smá séns að þessar tvær stillingar valdi samskiptavandræðum við einstaka úrelta vefþjóna, en ég hef enn ekki heyrt um neinn sem hefur lent í því í alvörunni.Það eru einhverjar fleiri stillingar sem getur verið þess virði að fikta í til að auka hraðann á HTTP samskiptunum (minna tímann sem það tekur að hlaða inn síður), en flestar þeirra byggjast á því að skapa ósmekklega mikið álag á hvern og einn vefþjón, og því hef ég ekki lyst á að mæla með þeim.
3. nóvember 2006 kl. 22:50 GMT | #