Firefox 2.0 kominn út!

Skrifað 25. október 2006, kl. 08:24

Í gær kom út ný útgáfa (2.0) af Firefox vafranum. Ég er mjög ánægður með breytingarnar/nýjungarnar, þótt þær séu kannski ekki allar mjög áberandi.

Það sem ég tek mest eftir er:

  • hann virðist hraðari og léttari en síðasta útgáfa (bara tilfinning, hef ekki mælt þetta)
  • Allt notendaviðmót er fínpússaðra og maður finnur mjög skýrt að þarna er á ferðinni afskaplega vandaður vafri.
  • Stafsetningaryfirlestur í innsláttarreitum sem virkar þannig að maður hægri-smellir með músinni til að skipta um tungumál (það er hægt að sækja Íslenskt orðasafn), leiðrétta vitlaust stöfuð orð, eða bæta nýyrðum í orðasafnið.

Það mikilvægasta við þessa heildaruppfærslu Firefox vafrans er samt það að allar vefsíður virka og líta út jafn vel og í fyrri útgáfum vafrans.

Þarna liggur t.d. grundvallar munur á Firefox og nýju útgáfunni af Microsoft Internet Explorer sem kom út í vikunni sem leið.

Nýi Explorerinn er að sumu leyti skárri en síðasta útgáfa (eftir 5 ár af fullkominni stöðnun!) en jafnframt svo gallaður og illa forritaður að í vinnunni hjá mér tölum við um "IE7-vandann" - og vísum þar til þess sem kallað var "2000-vandinn" á sínum tíma, en ólíkt 2000-vandanum er IE7-vandinn raunverulegur vandi í vef-hugbúnaðar heiminum.

Ég hvet alla sem ætla á annað borð að uppfæra úr Internet Explorer 6.0, að taka skrefið til fulls og fá sér almennilegan vafra á borð við Firefox 2.0 ... eða prófa Opera 9.

P.S. Ég gróf til gamans þessa gömlu bloggfærslu frá júní 2003 þegar ég prófaði Firefox fyrst. Svakalega hefur orðið mikil þróun síðan þá. :-)


Meira þessu líkt: Hugbúnaður.


Svör frá lesendum (4)

  1. Freyr svarar:

    Mér finnst hann líka hraðari og léttari - það sést greinilegra ef maður keyrir hann á eldri og hægvirkar tölvum.

    Mæli með að breyta linknum í íslenska orðasafnið svo urlið endi á is-IS í staðin fyrir en-US svo að fólk þurfi ekki að leita. :-)

    25. október 2006 kl. 14:02 GMT | #

  2. Már svarar:

    Takk Freyr, ég er búinn að breyta tilvísuninni.

    26. október 2006 kl. 00:01 GMT | #

  3. Már Örlygsson: Firefox 2.0: Stillingar og viðbætur

    "Viðbætur og stillingar sem ég nota og/eða mæli með. Gagnlegar stillingar (Tools -> Options...): Main -> Startup -> When Firefox Starts : Show my windows and tabs from last time Advanced -> General -> Search for text when I start..." Lesa meira

    26. október 2006 kl. 02:45 GMT | #

  4. Siggi Sveinn svarar:

    Það er víst komin enn betri útgáfa af Firefox. Ertu búinn að tékka á henni? ;)

    20. nóvember 2006 kl. 13:49 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)