Kúkur
"Civilization is a constant effort to cover up the fact that we shit, often smell bad, sooner or later decay and die. In a well-run modern city -- even in its hospitals and funeral homes -- all reminders of such unpleasantness (including the poor) are carefully hidden from view."
-- Milan Kundera, The Unbearable Lightness of Being.
Mér fannst -- og finnst enn -- einn af stóru kostunum við að eignast barn, hvað það kippir manni í tengsl við raunveruleikann. Lífið byrjar að snúast um kúk. Kúkasafa í fötum. Kúkalykt. Kúk á puttunum á manni og höndum. Kúk á milli lítilla táa og alveg upp á háls.
...og manni alveg að óvörum kemst maður að því að kúkur er alls ekkert eins slæmur og af er látið. Lífið er fullt af kúk, en þrátt fyrir það er það alveg þrælfínt!
Meira þessu líkt: Logi Garpur, Lífssýn, Útgáfa.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
Bragi Skaftason svarar:
Ég vil þakka þér kærlega fyrir að hvetja mig og mína konu til barneigna. hmmmmm
11. maí 2006 kl. 01:42 GMT | #
Svansson svarar:
Þú varst aldrei sendur í sveit?
11. maí 2006 kl. 09:44 GMT | #
Már svarar:
Svansson, jú og nei. ...Ég er aðallega að uppgötva þetta aftur sem fullorðinn. Svo er manni líka kennt að það sé munur á mannaskít og dýraskít.
11. maí 2006 kl. 09:56 GMT | #
Svansson svarar:
Jú - það gæti verið. Íslenskt bændafólk var í því throughout fyrrihluta 20. aldarinnar að byggja kamra en hætta að gera sín stykki í flórinn, sem er sjálfsagt siðmenning í sjálfu sér.
12. maí 2006 kl. 12:13 GMT | #
Hr. Svavar svarar:
Heyr Heyr, Már og mæl þú manna heilastur. Kúkur er bara góður hlutur og hressandi að þrífa barnið sitt.
2. júní 2006 kl. 11:16 GMT | #
Jenný svarar:
I beg to differ!! Alveg komin með nóg af kúk.. er að venja yngri mína af bleyju og púff.. kúkur er sko barasta verri en af er látið!! Enda ætla ég ekki að eignast fleiri gríslinga:) kv
5. júní 2006 kl. 11:26 GMT | #