Fundnir staðir frá Kaupmannahöfn anno 1997

Skrifað 25. apríl 2006, kl. 22:07

Nokkrir staðir sem eru enn týndir:

  • Databilioteket rétt vestan við gamla miðbæinn í Köben þar sem ég sendi tölvupóst og heimabankaðist.
  • Tyrkjasjoppan sem seldi alltaf bjór eftir kl. 8 rétt hjá Kongens Nytorv og Strikinu (ca. þarna??)
  • Heimili Önnu (Logamömmu) og Luca í Ålborg.
  • Húsið þar sem ég gisti hjá Pálínu frænku í Hundige(?) á Suð-Austur Sjálandi.
  • Bílskúrsþakið undir brekkunni í miðborg Gautaborgar þar sem við Logi sváfum tvær nætur undir berum himni - þá seinni í svefnpoka.
  • Stóra tréð í almenningsgarðinum í miðborg Gautaborgar þar sem við dottuðum áfram eftir að eigendur bílskúrsins voru líklega farnir á fætur.

Svo eru náttla fullt, fullt af augljósum stöðum sem ég nenni ekki að linka á. (Auk þess sem Reykjavík er komin í sæmilega upplausn.)


Svör frá lesendum (7)

  1. Svansson svarar:

    Jaktvej - hversu langt er hann frá Strikinu og ca hvar í Köben?

    26. apríl 2006 kl. 11:40 GMT | #

  2. Már svarar:

    Það átti náttúrulega að vera "Jagtvej" (búinn að leiðrétta).

    Smelltu á linkinn og skoðaðu götunöfnin, þá finnurðu götuna og staðsetningu hennar í Köben.

    26. apríl 2006 kl. 12:58 GMT | #

  3. Freyr svarar:

    Það er skuggalegt hvað maður getur tapað sér í Google Maps og sérstaklega Google Earth við að skoða hitt og þetta. Gaman að sjá höfuðborgarsvæðið komið í hærri upplausn, en miðað við að það eru enn óbyggð hús nálægt heimilinu mínu mundi ég segja að þetta væri ca 3 ára gamlar myndir.

    27. apríl 2006 kl. 11:45 GMT | #

  4. Freyr svarar:

    Tívólíið er fyrir utan Smáralind, þannig að myndirnar eru frá ágúst 2003.

    27. apríl 2006 kl. 11:50 GMT | #

  5. Hrafnkell svarar:

    Það var tívólí við Smáralind í sumar og fyrrasumar ekki satt?

    27. apríl 2006 kl. 15:08 GMT | #

  6. Freyr svarar:

    Jú, en þá voru komin hús í hverfinu hjá mér sem eru ekki á kortinu. Reyndar núna þegar ég skoða betur mannvirkin, þá gæti þetta verið frá ágúst 2004.

    1. maí 2006 kl. 01:51 GMT | #

  7. Már svarar:

    Miðað við loftmyndirnar af húsinu okkar í Borgarvefsjánni, þá er Google að nota ljósmyndir af höfuðborgarsvæðinu teknar 18. júlí 2004.

    1. maí 2006 kl. 03:25 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)