Kaffitár selur hrábaunir

Skrifað 19. apríl 2006, kl. 19:40

Ég hafði um daginn samband við bæði Kaffitár og Te og kaffi og spurði hvort hægt væri að kaupa grænar, óbrenndar, kaffibaunir (hrábaunir) hjá þeim.

Kaffitár svaraði um hæl. Þau bjóða fólki að sérpanta hrábaunir með ca. dags fyrirvara og sækja þær í einhverja verslana þeirra (Kringlunni, Bankastræti, Þjóðminjasafni). Þau mæla með Kólombía baunum sem "auðveldum" í brennslu. 500g kosta 611 kr.

Te og kaffi hafði ekki svarað tölvupóstinum frá mér í dag, svo ég brá á það ráð að hringja. Eftir tvö símtöl (eitt í "fyrirtækið" og eitt í "verslunina") fékk ég að vita að þau selja líka hrábaunir í sérpöntun. Verslunarstjórinn var samt ekki viss hvert endanlegt verð yrði, en giskaði á "ca. 80-85% af verði brenndra bauna". Mér reiknast til að það þýði ca. 850 kr fyrir 500g.

Ég er búinn að panta mér 500g poka hjá Kaffitári, því þar fékk ég áberandi betri þjónustu, og ekki sakar að verðið er líka mun hagstæðara.

Til að byrja með ætla ég að prófa mig áfram með að brenna baunirnar í ofnskúffu (upp á gamla mátann) eða á wok pönnu. Samhliða því mun ég halda áfram að leita að hentugri poppkornsvél í verkið.


Svör frá lesendum (8)

  1. Jósi svarar:

    Ég á gasdrifinn lóðbolta, en það má taka framstykkið af honum og þá virkar hann sem lítill gasbrennari, svipaður þeim sem eru notaðir við Creme Bruleé gerð. Þar sem þú ert það bilaður að brenna þínar eigin baunir, viltu þá ekki bara fá brennarann lánaðann og brenna eina baun í einu?

    19. apríl 2006 kl. 21:49 GMT | #

  2. Stefán svarar:

    Er örugglega ekki hægt að nota límband í að redda þessu?

    Annars hvet ég þig til að finna enn frumlegri leið til að brenna kaffibaunir, eina í einau eða margar í senn. Hugsanæegur byrjunarstður er járngrind sem passar í brauðrist eða járnsigti sem nota má með Creme Bruleé brennaranum hans Jósa.

    Kveðja, -Stefán

    20. apríl 2006 kl. 09:32 GMT | #

  3. Stefán svarar:

    Ég held að það sé rétt að þú skrifir greinina "Þessi fyrirsögn er skrifuð fyrir Google - hvernig á að skrifa fyrir leitarvélar". Ég held þú hljótir að hafa valið þessa fyrirsögn til þess að aðrir sem eru hugsanlega að leita að hrábaunum finni greinina þína. Ég er viss um að það eru nokkrir fastagestir sem vildu gjarnan lesa sér aðeins til um það.

    Kveðja, -Stefán

    20. apríl 2006 kl. 11:24 GMT | #

  4. Már svarar:

    Stefán, góður! :-)

    20. apríl 2006 kl. 13:05 GMT | #

  5. Bragi Skaftason svarar:

    Brosi kátur í kampinn.

    20. apríl 2006 kl. 15:59 GMT | #

  6. Hrafnkell svarar:

    Enginn leitar að hrábaunum á google, heldur grænum baunum eða óbrenndum baunum.

    En áhugavert að vita að það sé hægt að fá grænar baunir.

    25. apríl 2006 kl. 16:21 GMT | #

  7. Siggi Sveinn svarar:

    Fólk sem leitar að grænum baunum fer ekki á Google. Það fer út í búð og kaupir eina dós frá Ora. :P

    25. apríl 2006 kl. 19:24 GMT | #

  8. Már svarar:

    Siggi Sveinn, hehe nákvæmlega það sem mér datt í hug!

    Jósi, þarft þú ekki að vera að prófa eitthvað vinur? :-)

    26. apríl 2006 kl. 01:45 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)