Silvía Nótt flott

Skrifað 24. mars 2006, kl. 22:57

Algjört æði þetta nýja myndband ... og enski textinn! Spurning samt hvort símtalið til gvuðs muni stuða einhverja?

Ég dundaði mér við að læra á "transcoding" fítusinn í VLC spilaranum (böggað drasl) og eignaðist í leiðinni mitt eigið eintak af myndbandinu. Jei!

Einhver annar var greinilega eldsnöggur að henda afriti inn á YouTube: Silvía Nótt - Congratulations


Meira þessu líkt: Listir og menning.


Svör frá lesendum (3)

  1. Vala svarar:

    Silvía er algjört yndi, en þessi himpingimpi sem fylgja henni eiga eftir að draga hana niður. Þeir voru frábærir þegar þeir birtust fyrst á sjánum í forkeppninni: myndarlegir gaurar sem héldu sig til hlés þar til þeir fækkuðu fötum í lokin (nammi! var réttnefni), en heldur þótti mér halla á ógæfuhliðina þegar þeir fóru að hafa sig meira í frammi, jafnt í viðtölum sem flutningi lagsins, og í þessari nýju útgáfu hefur gersamlega keyrt um þverbak. Húrra, Silvía, bú á fylgisveinana.

    25. mars 2006 kl. 00:58 GMT | #

  2. Kapteinn ofurbrók svarar:

    Sammála Vala. En ábyrgð Silvíu Nætur er mikil. Hún ber hróður okkar um gjörvalla Evrópu og varla er til betri landkynning. Yfirburðasigur í forkeppninni er bara forsmekkurinn. Ég efast ekki um sigur en kommonisminn er alltaf samur við sig. Ef svo ólíklega vildi til að okkar kona vinni ekki þá er leiðin heim að Bessastöðum greið. Hver vill sjá steingelda afdankað uppgjafa sendiherra eða ritstjóratíkur sem þykjast geta keypt allan heiminn, á Bessastöðum ?

    28. mars 2006 kl. 11:41 GMT | #

  3. Freyr svarar:

    Ef þessi keppni væri í BNA væri henni sjálfsagt neitað að koma fram, enda gengur karakterinn hennar út á að særa blygðunarkennd annarra og þar eru menn svo hörundsárir að setning eins og "I'll fucking win" fer svo fyrir brjóstið á mönnum að þeir gefa út sektir fyrir slíkt orðalag.

    Þó svo að það séu margar strangtrúaðar þjóðir í Evrópu, þá held ég og vona að Silvía sigli í gegnum þær öldur sem verða á vegi hennar.

    29. mars 2006 kl. 09:43 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)