Til hamingju Ísland
Það opinberast hér með að litla stúlkan heitir Úlfrún Kristínudóttir.
Jafnréttisgenið í okkur Stínu segir okkur að það sé bæði skemmtilegt og eðlilegt að leggja okkar af mörkum í því að koma á þeirri hefð að synir séu kenndir við föður sinn og dætur við móður sína.
Með nafninu Úlfrún vonumst við til að magna upp seið þannig að stúlkan vaxi úr grasi sterk og mátulega villt.
Hún hefur verið afar vær og sefur inn á milli þess sem hún vaknar og drekkur eins og svampur. Garpur stendur sig eins og hetja í stórabróðurhlutverkinu og virðist mæta þessum breytingum á fjölskyldulífinu með stóískri ró, fullur sjálfsöryggis.
Varðandi Garp, þá leggjum við áherslu á að veita honum nákvæmlega jafn mikla athygli og knús og áður og breyta sem minnstu í hegðun okkar gangvart honum, og tala um Úlfrúnu sem litlu stúlkuna okkar, og ítreka það að hann er og verður alltaf uppáhalds litli strákurinn okkar. Hann er á köflum alveg að rifna úr stolti.
Meira þessu líkt: Logi Garpur, Úlfrún.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (12)
Salvör svarar:
Innilega til hamingju með barnið. Fallegt og kröftugt nafn og góður siður að kenna börn líka við móður.
Ég hef oft spáð í hvort ekki sé sniðugt að kenna stelpur við feður og stráka við mæður. Þannig hétu börn bæði karl- og kvenmannsnafni og það eins og undirstrikaði að karl- og kveneðli býr í öllu.
24. febrúar 2006 kl. 01:44 GMT | #
JBJ svarar:
Til hamingju með erfingja #2.
Sterk nöfn hjá báðum. Úlfrún verður eini núlifandi Íslendingurinn sem heitir þetta að fornafni.
24. febrúar 2006 kl. 03:19 GMT | #
Már svarar:
JBJ, jamm... okkur þótti það skemmtilegur bónus.
Salvör, já það er líka skemmtileg hugsun - þetta með kven- og karleðlið. :-)
24. febrúar 2006 kl. 10:43 GMT | #
Kiza svarar:
Elsku strákurinn, til hamingju með stúlkuna #koss# Nafnið er fallegt og skemmtilegt að kenna börn við mæður sínar... held ég verði bara að koma með eitt í viðbót (það 4.) þó ekki væri nema til að kenna það við mig. Kattlingur Kizuson hljómar svo ágætlega ;) Knús og kossar í bak og fyrir, til ykkar allra!
24. febrúar 2006 kl. 13:11 GMT | #
Edda pössunarpía svarar:
Til hamingju með stelpuna og þetta fallega nafn. Hef aldrei heyrt það áður en líst mjög vel á svona sterkt nafn á sterkan einstakling.
24. febrúar 2006 kl. 14:45 GMT | #
Hallur svarar:
Til hamingju með stórt og glæsilegt nafn!
24. febrúar 2006 kl. 15:44 GMT | #
Unnur María svarar:
Flott nafn og flott að kenna við móður. Þó svo ég hafi efasemdir um svokallað karl og kveneðli þá er það alveg ljóst að það er auðvitað röðin komin að Stínu að fá eitt af börnunum ykkar kennt við sig ;) Auk þess hljómar ,,Kristínarson" virkilega fallega :) Bið kærlega að heilsa Úlfrúnu litlu og Garpi! :)
24. febrúar 2006 kl. 23:34 GMT | #
Unnur María svarar:
Hmm... meinti ,,Kristínuson". Er greinilega ekki rithæf eftir tvö rauðvínsglös ;)
24. febrúar 2006 kl. 23:36 GMT | #
Hildur Skula svarar:
Hamingjuoskir fra Bergen! Til hamingju med litla kruttid! Frabært ad allt gekk vel!! Hlakka til ad kikja a ykkur i april!
Hildur frænka
25. febrúar 2006 kl. 10:08 GMT | #
umhugsun [213-213-136-21.xdsl.is] svarar:
Sérstakelga fallegt og kraftmikið nafn. Varaðndi eftirnafnið vil ég persónulega sýna ánægju með áhugaverða afstöðu en ég vil jafnframt minna ykkur á að að stundum eru "öðruvísi" foreldrar byrgði á "ó-öðruvísi" börnum. Ég þekki það vel að hafa verið alin upp af "fríhugsandi" hippaforeldum og að hafa ekki alltaf þótt það þægilegt. Stundum er frjálshyggja foreldra af hinu góða svo lengi sem börnin sjálf fá að velja sér hana. Frjálshyggja hættir nefnilega að vera það ef henni er þröngvað upp á aðra. Ég held að ungfrú Úlfrún verði í besta lagi og ég óska henni allrar hamingju en ég vil aftur minna ykkur á að ykkar barátta er ykkar en ekki þeirra. Börnin okkar verða að fá að velja sín baráttumál sjálf.
26. febrúar 2006 kl. 00:41 GMT | #
Már svarar:
Bah, ég held að það sé nú verið að gera heldur mikið pönk úr því að við kennum grey stúlkuna við mömmu sína. Það hefði kannski þótt eitthvað "risque" hérna fyrir 20-30 árum, en nú til dags þykir þetta varla eftirtektarvert.
Við Stína erum bæði alin upp af því sem flestir mundu vísast kalla "'fríhugsandi' hippaforeldrum" og við komumst bæði frá því bara alveg þokkalega heil heilsu, takk fyrir. :-)
Ég held að ég skilji ágætlega hvað ungfrú nafnlaus hér að ofan er að pæla. Engu að síður frábið ég mér frekari predikanir í þessa veru, í það minnsta frá ókunnugum aðilum sem geta ekki gert það undir nafni (eða a.m.k. réttu netfangi).
26. febrúar 2006 kl. 02:01 GMT | #
Steini svarar:
Innilega til hamingju með litla krílið öll þrjú. Og maður lifandi sem hún fær kröftuga forgjöf í Úlfrúnar nafninu. Ákvað sjálfur að hafa vísun i úlfsnafnið á nýjustu dömunni minni - þó ég færi mýkri leiðina með Ylfa.
27. febrúar 2006 kl. 10:45 GMT | #