Skattamálin í Kastljósinu

Skrifað 21. febrúar 2006, kl. 11:07

Svakalega finnst mér þeir frábærir pistlarnir sem Jóhanna Vilhjálmsdóttir hefur flutt í Kastljósinu undanfarið um það hvort skattar hafi hækkað eða lækkað í tið núsitjandi ríkisstjórnar. Þar tekst henni að gera tiltölulega einfalt málefni ... einfalt.

Það væri s.s. ekki í frásögur færandi, ef pólitíkusar landsins væru ekki búnir að leggjast á eitt um að flækja umræðuna í endalausan hnút.

Jóhanna greiðir úr flækjunni og bregður kastljósinu á atriðin sem skipta máli, á máli sem allir geta skilið og myndað sér skoðun á.

Það eina sem vantar upp á er að hún skoði aukna kostnaðarþáttöku skattgreiðenda á ýmsum sviðum - t.d. í skóla- og heilbrigðiskerfinu - og hvernig hún vegur mögulega upp á móti þeirri skattalækkun sem birtist þegar aðeins er horft til þróunar verðlags síðasta áratug.

Svo væri ekki galið að skoða þróun launadreifingar á Íslandi (sbr. Gini stuðullinn) og báðar hliðar umræðunnar um hvort fátækt sé algilt ástand (eins og hægrimenn halda statt og stöðugt fram), eða hvort hún sé að einhverju leyti afstætt ástand - háð samfélagslegum og menningarlegum viðmiðum í hverju samfélagi.

Allavega, þá finnst mér ástæða til að hrósa Jóhönnu og þeim í Kastljósinu fyrir góða blaðamennsku, og sérstaklega að brjótast úr viðjum þess að yppa alltaf heimskulega öxlum í lok bjánalegs orðaskaks tveggja pólitíkusa og segja "við fáum víst aldrei botn í þetta" eins og svo oft vill brenna við í Íslenskum fjölmiðlum.


Svör frá lesendum (2)

  1. Hrafnkell svarar:

    Alveg sammála þér með þetta. Jóhanna hefur verið að gera þetta á þann hátt að þetta er skiljanlegt öllum sem fylgjast með þessari umfjöllun og hún á svo sannarlega hrós skilið fyrir framtakið. vonandi heldur hún áfram að fjalla um þetta mál.

    21. febrúar 2006 kl. 11:27 GMT | #

  2. Unnur María svarar:

    Hehe, þú hittir alveg naglann á hausinn þarna undir lok færslunnar! :)

    22. febrúar 2006 kl. 11:25 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)