Færslur föstudaginn 17. febrúar 2006

Kl. 22:55: Kæra Hugrún - "Sparsami húsfaðirinn" svarar 

Blaðakonan Hugrún bloggar um viðbrögðin við greininni sem hún skrifaði um okkur hjónin og birti í Blaðinu á þriðjudag, og ég pirraði mig yfir á miðvikudag, og DV smjattaði á öllu saman í gærdag.

Eftirfarandi byrjaði sem svar í dagbókinni hennar, sem ég ákvað svo að betra væri að birta hér:


Ef ég á að vera alveg heiðarlegur, þá finnst mér fjölskylda mín hafa verið notuð sem persónur í leikriti sem Hugrún er að skrifa um hvunndagshetjur í íslenskum nútíma.

Umfjöllun um þessi mál er af hinu góða. Náttúruvænn, nýtinn lífstíll laus úr hlekkjum neyslukapphlaupsins er nokkuð sem ég aðhyllist og vil því í prinsippinu veg þessa greinaflokks sem mestan.

Það er hins vegar svo, að þegar venjulegt fólk eins og við Kristína hleypir fjölmiðlamanneskju inn á gafl hjá sér og gefur einlægt viðtal um persónulega, sérviskulega hagi sína, þá þarf hún að vanda vinnubrögðin alveg extra vel. Að ég tali nú ekki um þegar menn ákveða að auglýsa viðtalið upp á forsíðu viðkomandi dagblaðs.

Það er að mínu mati gjörsamlega innistæðulaust að tala um "gersemar sem fara þarf vel með" og "að vanda verk sín", þegar á borðinu liggur slagorðakennd forsíðufyrirsögn sem er hreinn og klár uppspuni, og meðhöndlun á heimildum sem hefði líkast til gefið ansi bága einkunn ef menntaskólanemi hefði skilað þessu inn sem verkefni (sjá mynd).

Ég er bara ósköp venjulegur gaur. Og konan mín er alveg ofurvenjuleg kona. Og þótt við höfum bæði afar jákvæða og heilbrigða sjálfsmynd og séum bara þónokkuð ánægð með líf okkar, þá erum við samt pínu viðkvæm fyrir því að vera breytt í sögupersónur í leikriti - hálfgerðum sirkus - vera dubbuð upp sem ógurlegar hvunndagshetjur (eða allt að því glæpsamlegir nískupúkar, eftir því hvernig fólk les greinina), og vekja umtal og athygli fyrir að vera eitthvað sem við erum ekki, en hentaði e.t.v. höfundinum að skrifa inn í söguþráðinn.

Við leggjum ekki helming teknanna fyrir í hverjum mánuði (ég vildi glaður óska að við kæmumst stundum einhversstaðar nálægt því), mestur hluti daglegrar neyslu okkar fer fram með greiðslukorti (lengi lifi VISA!), við kaupum okkur ný föt, við förum reglulega út að borða, við kaupum snobbaðan mat og drykki, kaupum leikföng handa barninu okkar á fleiri stöðum en bara í Góða hirðinum, förum til útlanda oftar en flestir sem við þekkjum.

Ég ekki að segja að allt sé vitleysa sem kom fram í greininni, eða að við séum ekki pínu stórskrýtin á mælikvarða hinnar viðteknu neysluvenju. Megnið setningunum í greininni voru tæknilega séð hárréttar, en matreiðslan og kæruleysisleg meðferðin á hráefninu skilaði útkomu sem var á köflum ansi hreint ólík fyrirmyndinni.

Ég held statt og stöðugt í trúna um það að Hugrún hafi ekki viljandi staðið svona að málum, og um heiðarlegan dómgreindarskot hafi verið að ræða. Ég vil líka taka skýrt fram að ég er ekki "brjálaður" út í einn eða neinn (sama hvað DV segir), og sem komið er hef ég neitað þremur fjölmiðlum um viðtal út af þessu máli öllu. (Stormur, vatnsglas, etc.)

Hins vegar áskil ég mér fullan rétt til þess að vera pínu sár yfir þessari útkomu í Blaðinu, og mun fyrir mitt leyti ósjálfrátt hugsa mig tvisvar um áður en ég treysti fagmennsku hennar aftur (lái mér hver sem vill).

Með vinsemd og virðingu,
-- Már 'Amish' Örlygsson.

(1) "Amish fólkið" er það sem starfsmenn í Marel kölluðu okkur hjónin víst á miðvikudaginn þegar þeir hlógu að okkur yfir morgunkaffinu. Mér fannst það pínu sniðugt hjá þeim. :-)

Svör frá lesendum (3) | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í febrúar 2006

febrúar 2006
SunMán ÞriMið FimFös Lau
      1. 2. 3. 4.
5. 6. 7. 8. 9. 10. 11.
12. 13. 14. 15. 16. 17. 18.
19. 20. 21. 22. 23. 24. 25.
26. 27. 28.        

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)