Dæmisögur Esóps á MP3

Skrifað 11. febrúar 2006, kl. 00:46

Mér datt í hug í kvöld að það gæti verið sniðugt að lesa Dæmisögur Esóps inn á tölvuna. Markmiðið er að brenna geisladisk svo Garpur geti hlustað á þær þegar hann er að leika sér.

Fyrsti skammtur er sjö tólf sögur.


Svör frá lesendum (8)

  1. Halldór E. svarar:

    Skemmtilegt og áhugavert framtak. Er heimalesnum hljóðbókum á íslensku einhvers staðar haldið til haga?

    11. febrúar 2006 kl. 17:06 GMT | #

  2. Zato svarar:

    Snild !

    Þetta var upphaldsbókin mín þegar að ég var lítill strákur, ja fyrir utan Robinson Curso.

    Reyndar hef ég verið að pæla lengi í svipuðu dæmi. Vegna lesblindu minnar er ég hægur í skriftum og hef lengi gælt við hugmyndina að setjast bara niður og taka sjálfan mig upp að segja sögurnar.

    Gott ef þetta dæmi hafi ekki bara gefið mér innblástur til þess að lata verða af því.

    11. febrúar 2006 kl. 19:12 GMT | #

  3. Steini svarar:

    Már - af öllu því sniðuga sem þér hefur dottið í hug - þá er þetta í topp 3.

    Nú þarf bara að tryggja "movement of the people" taki sig saman og haldi þessu áfram.... hvaða skruddur ætti maður að taka fyrir???

    ÞYG

    12. febrúar 2006 kl. 15:04 GMT | #

  4. Már svarar:

    Halldór, ég veit ekki til að þetta hafi verið gert að neinu ráði hér á Íslandi. Eina dæmið sem ég man eftir er "Útvarp ótti" hjá Palla Hilmars, þar sem hann las Bangsímon og Veröld Busters og spilaði valda tónlist inn á milli í hverjum hljóðfæl.

    12. febrúar 2006 kl. 17:35 GMT | #

  5. Már Örlygsson: Fleiri dæmisögur

    "Annar skammtur 12. febrúar: 11 dæmisögur í viðbót. Ég er núna að velta fyrir mér hvort ekki sé hægt að eftirvinna þessar hljóðskrár til að sía burt suð og umhverfishljóð... (ætla að hitta Svabba í kvöld og pota aðeins í..." Lesa meira

    12. febrúar 2006 kl. 18:09 GMT | #

  6. Már Örlygsson: Þriðji skammtur af dæmisögum Esóps

    "Sögurnar (mp3 skrárnar) eru núna orðnar 48 (aðeins 96 eftir). Ég er búinn að setja upp Bittorrent niðurhal, áhugasömum til hagræðis. Hljóðgæðin hafa snarbatnað, þótt upptökugræjurnar og allar aðstæður séu (viljandi) tiltölulega frumstæðar og einfaldar...." Lesa meira

    26. apríl 2006 kl. 01:29 GMT | #

  7. Már Örlygsson: Dæmisögur Esóps, fjórði skammtur

    "Fjórði skammturinn af sögunum er kominn í loftið. 24 nýjar sögur, en samtals eru þær nú orðnar 72. Lesturinn er s.s. hálfnaður. Sem áður er auðveldast að sækja þær með BitTorrent forriti...." Lesa meira

    26. apríl 2006 kl. 01:30 GMT | #

  8. Már Örlygsson: Dæmisögur Esóps, fimmti skammtur

    "18 nýjar dæmisögur Esóps, sem gera alls 90 sögur í sarpnum, sem gera 2 klst. og 6 mínútur sem ca. sléttfylla tvo geisladiska. Núna eru 54 sögur eftir ólesnar...." Lesa meira

    26. apríl 2006 kl. 01:39 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)