"Stóra júróvisjónmálið"...
Það var ekki laust við að mér þætti pínulítið kostuleg þessi setning í kvöldfréttunum í kvöld hjá Kristjáni Hreinssyni, (júróvisjón)skáldi, sem kærði í gær RÚV fyrir að gera undanþágu fyrir hið lekna lag Þorvaldar Bjarna og Silvíu Nóttar:
"Ef menn brjóta lög, skiluru, þá þarf að taka á því."
Það var og...
Svo hef ég gaman að þessari nettu gelgjuvæðingu sem hefur orðið á svarhalanum við upprunalegu Silvíu Nóttar færsluna mína. Greinilegt að einhver bloggsíða hefur vísað til mín straumi nýrra og ferskra lesenda. :-)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (8)
Einar Örn svarar:
Jamm, það er oft fyndið þegar svona gerist. Það er að kommentin verða skrýtnari og skrýtnari og manni fer að gruna að lesendahópurinn hafi allt í einu margfaldast og umbreyst. :-)
6. febrúar 2006 kl. 09:39 GMT | #
svansson.net svarar:
Það er einmitt stórkostlegt að sjá hvað kynslóðirnar á eftir okkur eru ófeimnar og duglegar á kommentakerfunum. Mússímússímússí. :)
6. febrúar 2006 kl. 09:56 GMT | #
bió svarar:
Mér fannst nú kommentið hans um að það myndi enginn líða það að annað liðið í handboltaleik fengi að skipta oftar inn á en hitt það lang besta.
...það er nú svo skemmtilegt að í handbolta eru engar takmarkanir á fjölda innáskiptinga.
skiluru
6. febrúar 2006 kl. 10:00 GMT | #
Zato svarar:
Ég segi nú bara, er ekki verið að taka þessa júróvisjón-keppni einu of alvarlega þegar fólk er farið að lögsækja kolegga sína útaf einvhverju sem í raun og veru á ekki eftir að hafa nein raunveruleg áhrif á nokkurn skapaðan hlut?
Fólk eins og ég sem stendur á hliðar línum þessa máls, fær það óneitanlega á tilfinninguna að Kristján Hreins sé vissum að lagið sem Silvía Nótt singur eigi eftir að vinna og þar með lag/lög Kristjáns ekki. Ef þetta er það sem vakir fyrir honum og rekur hann áfram í þessari dæmalausu vitleysu er hann sorglegur, sorglegur maður sem ætti að finna sér annað hobbí.
En ef þetta er útaf því að hann er svo "réttsýnn" og mikill reglupési þá mæli með því að reyni að slappa aðeins af og borði meira af trefjum, því að fólk með þessa "tendensa" er í áhættuhóp þeirra sem fá hjartaáföll og ristil-krabba.
7. febrúar 2006 kl. 18:12 GMT | #
Árni Hermann svarar:
Fannst það koma á óvart hversu illa að máli kominn þessi maður var. Líklegast leynist Silvía í okkur öllum, skiluru?
7. febrúar 2006 kl. 21:00 GMT | #
Már svarar:
Árni, jamm, maður þarf víst ekki að vera neitt sérstaklega vel máli farinn til að titla sig skáld. ;-)
Siggi, rétt mælir þú bróðir. Besti húmorinn í þessu öllu saman er að það sem allir eru bókstaflega að eipsjitta yfir er ekki sjálf júróvisjón keppnin, og ekki undankeppni júróvisjón, heldur undan-undankeppni júróvisjón. Svona lagakeppnir verða ekki mikið ómerkilegri en þetta.
Þegar kemur að sjálfri undankeppninni, þann 18. febrúar, verður búið að ofspila öll lögin fimmtán svo gengdarlaust að við verðum komin með nákvæmlega jafn mikið upp í kok af þeim öllum.
P.S. ég veit núna hvað veldur þessari síðbúnu traffík á fyrstu bloggfærsluna. Google fann nafnið "Silvía Nótt" í titlinum á síðunni og birtir hana núna sem 3. niðurstöðu fyrir það leitarorð.
7. febrúar 2006 kl. 22:57 GMT | #
Kolli svarar:
Dálítið findið hvernig ég rakst inn á síðuna, var að leita á google eftir "senda sms sem tölvupóst" :) Er reyndar búinn að svara hér líka... Enn og aftur, þessi kæra er bara brandari, ég er mest hissa á þeim sem hafa tekið málstað kærandans og finnst reyndar það innlegg sem ég hef séð frá slíkum gjarnan einskorðast af fáfræði. Reyndar tók ég þátt í smá inleggi á blogginu hjá Láru sem situr í Útvarpsráði, ef einhver hefur áhuga á að sjá það sem þar fór fram þá er hér krækja á www.lara.is
8. febrúar 2006 kl. 17:25 GMT | #
Unnur María svarar:
Ég vissi ekki að það væru neinar kynslóðir fæddar á eftir mér ennþá. En aldur er víst hugarástand ;)
9. febrúar 2006 kl. 11:40 GMT | #