Silvía Nótt og Júróvision á laugardaginn

Skrifað 1. febrúar 2006, kl. 14:20

Er að hlusta á Silvíu Nætur lagið sem gengur manna á milli þessa dagana. Við það vakna tvær spurningar:

  1. Ef þetta er lagið sem verður flutt á laugardaginn kemur, hvaða áhrif hefur það á samkeppnisstöðu þess, að aðstandendur þess hafa lekið því á netið á undan áætlun? Hvað með hin lögin sem verða væntanlega frumflutt þetta kvöld?
  2. Er ekki mögulegt að þetta sé ekki keppnislagið, heldur hreinlega annað lag sem höfundarnir sömdu, tóku upp og ákváðu að dreifa, sem útsmoginni brellu til að skapa umtal og áhorf (atkvæði) á laugardagskvöldið.

P.S. Forvitnir geta verið í sambandi ef þeir vilja hljóðdæmi.


Svör frá lesendum (27)

  1. pallih svarar:

    Já... DV í dag er undirlagt af svipuðum pælingum og á visir.is má lesa fréttir um að aðstandendur keppninnar íhugi að vísa því frá. Aðrir höfundar eru líka eitthvað óhressir og hóta að draga sig útúr keppninni fái Silvía að syngja.

    Þessi útgáfa sem er á netinu virðist vera ómasterað demó - en er þrælgott lag.

    Og auðvitað var Silvía með forskot á hina, einfaldlega vegna þess að hún er langtum flottari en Ómar Ragnarsson að blístra - eða það finnst mér.

    1. febrúar 2006 kl. 15:16 GMT | #

  2. Már svarar:

    Þetta er fínt lag já! Alveg langbest af þeim sem hafa komið á sviðið hingað til - sorglegt að hún fái (væntanlega) ekki að taka það alla leið.

    1. febrúar 2006 kl. 17:04 GMT | #

  3. anna svarar:

    Já það er sannarlega sorglegt því þetta er helv. gott lag!

    Silvíu í Eurovision!

    2. febrúar 2006 kl. 11:53 GMT | #

  4. egill svarar:

    Það er greinilegt að aðrir keppendur eru hræddir við að láta þjóðina dæma í þessu máli. Það er líklega rétt sem einhver sagði, málið er að ef að Silvía er með, þá vinnur hún, en ef hún er ekki með þá eiga allir hinir jafna möguleika - því allir hinir eru með jafn leiðinleg lög.

    Skiptir mig engu máli þótt ég hafi heyrt lagið í gær, eða hvort ég heyri það á laugardag. Miðað við hversu gott lagið er, og að það greip mig strax, þá skiptir það mig engu máli - það stendur upp úr hvort sem er. Þetta lag er einfaldlega betra en öll hin lögin.

    Áfram Silvía!

    3. febrúar 2006 kl. 10:46 GMT | #

  5. Már svarar:

    En Egill, er þetta ekki einmitt það sem hinir keppendurnir eru að pirra sig á? Þú ert búinn að ákveð að "Þetta lag er einfaldlega betra en öll hin lögin" ... án þess að hafa heyrt öll hin lögin. :-)

    Gangur þessarar vel smurðu áróðursmaskínu undanfarna daga, hefur gulltryggt Þorvaldi og félögum heilmikið forskot fram yfir aðra keppendur, og ég er ekki viss um að það sé endilega verðskuldað - sama hversu gott mér kann að finnast þetta ákveða lag.

    3. febrúar 2006 kl. 17:31 GMT | #

  6. Annalísa svarar:

    hæ..!! hvar getur maður fundið lagið Til hamingju Ísland? En mér finnst þetta í lagi með að hún Silvía Nótt fari í eurovision!

    4. febrúar 2006 kl. 09:25 GMT | #

  7. Már svarar:

    Annalísa, þú getur t.d. horft á sjónvarpið í kvöld... :-)

    4. febrúar 2006 kl. 17:29 GMT | #

  8. Erna svarar:

    Hæhæ, þetta lag er bara frábært, það er í raun þannig að ég var búin að ákveða að kjósa Silvíu löngu áður en ég komst að því að lagið væri komið á netið. Þetta er mjög gott lag og flest lög sem Þorvaldur gerir eru líka fjandi góð. Textinn er sérstakur og ég hef ekki hugmynd um hvort Ítalir, Spánverjar, Litháenar, Rússar og allir þessir útlendingar hafa húmor fyrir þessu en skítt með það ÁFRAM SILVÍA OG ÁFRAM ÍSLAND!!! p.s. það er hægt að hlusta á lagið inná www.drasl.is og leita bara í leitarstrengnum að "Silvía Nótt" og þá kemur það bara!!:)

    4. febrúar 2006 kl. 18:49 GMT | #

  9. Kristmann svarar:

    Ef að silvía nótt vinnur er það bara út að littlum stelpum sem að halda að hún sé "Töff" Þegar maður lítur á þetta þá er "Silvía Nótt" ( Man ekki alvöru nafnið hennar ) helvíti klár stelpa, En hún á bara ekki heima í Eurovision. Ef að hún fer, Þá mun hún bara láta íslendinga skammast sín.

    4. febrúar 2006 kl. 20:42 GMT | #

  10. Sandra svarar:

    Hún á pottþétt eftir að rústa þessu og hefði gert það hvort sem það hefði farið á netið eða ekki..! Og ég held að þetta sé einmitt það sem Evrovision þarf.. eitthvað svona róttækt!!

    4. febrúar 2006 kl. 20:51 GMT | #

  11. Ingunn svarar:

    Tetta var magnadur andskoti hja henni og teim ollum a svidinu! Eg yrdi stolt ef hun færi ut tvi tetta er ekki ein onnur helvitis ballada!!! sorry...

    4. febrúar 2006 kl. 23:51 GMT | #

  12. Dísa svarar:

    Ég mun ekkert skammast mín fyrir Silvíu Nótt... hef reyndar stundum skammast mín fyrir það lag eða þá flytjendur sem við höfum sent út í gegnum tíðina. Eurovision á að vera "show" sem gaman er að horfa á... skemmtun og ég verð að segja að ballöður með rappívafi munu ekkert gera það betur en Silvía Nótt. Hverjir slóu í gegn í fyrra í Eurovision... hverjum man maður eftir??? WigWam ekki spurning í mínum huga og þeir voru nú ekki einhverjar vælandi veimiltítur sem tóku hlutunum alltof alvarlega - ég segi bara ÁFRAM SILVÍA NÓTT!

    5. febrúar 2006 kl. 00:13 GMT | #

  13. lalli jones (Lárus Hrafn) svarar:

    þetta er geðveikt lag!!! áfram silvía!!!!!!

    Kristmann þetta gengur ekki!!! hún er töff!!!!

    5. febrúar 2006 kl. 17:26 GMT | #

  14. Kristmann svarar:

    Og af hverju er hún töff? af því að hún kann ekki að velja föt? Af því að hún leikur hreina og beina tík? Af því að hún kann ekki að taka viðtöl?

    Eða er það bara af því að íslenskir unglingar kunna ekki að velja sína eigin skoðun. Hún segir í hverjum einasta þættu að hún sé töff, og þið trúið því.

    5. febrúar 2006 kl. 18:46 GMT | #

  15. Helga svarar:

    Hún er töff vegna þess að hún er ádeila á útlitsdýrkunar-ríkidæmisþjóðfélagið sem við erum að verða!!!

    6. febrúar 2006 kl. 11:46 GMT | #

  16. robert svarar:

    Einhver sem tók eurovision upp á laugardaginn og hefur sett lag silvíu nótt á tölvutækt form?

    6. febrúar 2006 kl. 13:08 GMT | #

  17. Þórdís svarar:

    omg!, hvað er að fólki !!! Silvía Nótt er svo mest töff í heimi skiluru!? ..fólk á bara að hætta með þennan móral and just drop it! Hún komst áfram í forkeppninni! og þúst hún á það svoo skilið! komst áfram þúst heiðarlega! ..well Go Silvía Night!=D

    6. febrúar 2006 kl. 13:31 GMT | #

  18. Anna svarar:

    Snilldar lag, hún fær mitt atkæði þessi elska. Alveg komin tími til að við íslendingar hristum aðeins upp í þessu hjá okkur;)

    Áfram Silvía!

    6. febrúar 2006 kl. 16:14 GMT | #

  19. Gúrúinn svarar:

    Norðmenn háðu sína Evrusýningarkeppni um helgina og þar tók þátt dúettinn Qeentastic. Þessi dúett samanstendur af karlmönnum í dragi og í miðju lagi sviptu þeir af sér neðri hluta kjólanna og dönsuðu og sungu á sokkabuxunum eftir það. En þar sem lagið var ekki sérstakt þá felldu Norðmenn það úr leík.

    Skipta umbúðirnar annars það miklu máli? Lag Nóttardrottingarinnar er gott og grípandi. Verst ef við vinnum og þurfum að byggja sönghöll undir evrópska glamúrgengið...

    6. febrúar 2006 kl. 17:38 GMT | #

  20. Erla Guðrún svarar:

    Ég bara villtist inná þetta af einhverri tilviljun :S en ég er allveg á því að hún eigi eftir að rústisu allveg ;) það er ekki eins og hún hafi sjálf settindda á netið og ætti ekkert að þurfa gjalda þess.. hún komst áfram því þetta var lang besta lagið og ég t.d. kaus hana á laugardaginn og hafði ekki hugmynd um að það væri á netinu og hafði alldrei heyrt það áður .. við myndum allveg pottþétt fá fleiri stig ef við sendum Silvíu Nótt ein eikker típísk evrovision lög eða ballöður .. meina það er ekki eins og þetta væri í fyrsta skiftið sem íslendingar myndu senda soltið spes lag .. voru ekki bara flestir frekar stoltir þegar Páll Óskar fór eða ?? en allavega hún á að fá að keppa og hún á eftir að rússtissu !!

    Go Silvía ;)

    6. febrúar 2006 kl. 21:06 GMT | #

  21. Freyr svarar:

    Er það ekki alltaf þannig að lög sem fólk er spenntast yfir séu líklegri til að leka út á netið en önnur lög? Damned if you do, damned if you don't.

    7. febrúar 2006 kl. 12:02 GMT | #

  22. Katrin svarar:

    Ef ég á að segja eins og er þá finnst mér lagið hennar alveg ótrúlega flott...og ef það fær að fara fyrir hönd Íslands þá yrði ég voðalega glöð af því að þetta lag laðar rosalega mikið að sér aðdáendur og bara Silvía Nótt sjálf, laðar alveg rosalega mikið af aðdáendum að sér...:) Þó að lagið hafi lekið út á netið þá er ekki þar með sagt að það þurfi að hætta með það í keppni. Ég meina, þau eru að gera þetta fyrir okkur Íslendinga, að koma með svona flott lag og það á örugglega eftir að njóta rosalega mikilla vinsælda í keppninni í Aþenu (ef það fer) og bara rústa henni... ...svo að ég segi nú bara..........GO SILVÍA NÓTT.......

    7. febrúar 2006 kl. 15:26 GMT | #

  23. sævarb svarar:

    Ég man nú ekki betur en að það hafi verið hér fyrir fáeinum árum að Austurríki hafi sent eitthvað lag þar sem maðurinn var að syngja um einhver dýr eða eitthvað slíkt og það var þarna í toppbaráttunni, sem sýnir greinilega að evrópubúar eru ánægðir með það þegar einhver þjóð breytir út af vananum. Svo ég spyr, hví ættum við ekki að senda ,,Til hamingju, Ísland'', það er vissulega mjög frumlegt lag miðað við önnur lög í þessari keppni og tel ég að það gefi okkur gott forskot og hver veit hvað gæti gerst í keppninni sjálfri.

    7. febrúar 2006 kl. 23:46 GMT | #

  24. Rósa svarar:

    Það eru 3 þættir þar sem lögin eru flutt til að velja hvaða lög komast áfram í undankeppnina og eftir hvern þátt þá eru lögin sett á netið. Þau lög sem voru í fyrsta þættinum eru aðgengileg í 2 vikur áður en þáttur númer 3 er sýndur þannig að þau lög hafa forskot á lögin sem eru í seinni þáttunum, af hverju er ekkert talað um þetta? Svo er umræðan í kringum þetta mjög mikil auglýsing, ef ég hefði átt lag í keppninni þá hefði eg bara haldið kjafti um að lagið væri á netinu og ekki hefði ég farið að væla um að það hafi forskot þar sem það beinir athyglinni að laginu þannig að allir bíða eftir að heyra þetta tiltekna lag en eru ekkert að pæla í hinum lögunum. Svo finnst mér þetta bara vera væl og óöryggi í hinum. Svo þetta að segja að Silvía Nótt vinni bara af því að þetta er hún.. það er rugl, auðvitað vinnur hún einhver stig út á það en hvað með þegar Birgitta fór út?? Það var alls ekki besta lagið en af því að þetta var Birgitta Haukdal þá vann hún, ekki var neitt tuðað yfir því. Ég held að þeir sem eru að tuða yfir laginu Til hamingju Ísland séu íhaldsamir og taki Eurovision alltof alvarlega, þessi keppni á að vera skemmtun og samstarf á milli landanna, sameina "stríðandi fylkingar" í söng ef svo má segja :)

    8. febrúar 2006 kl. 02:15 GMT | #

  25. Már svarar:

    Rósa, ég held að þú hafir sagt allt sem ég var að hugsa um þetta mál ... sjá hér

    8. febrúar 2006 kl. 08:36 GMT | #

  26. Kolli svarar:

    Þetta er allveg á hreinu, dreifing á netinu telst ekki til opinbers flutnings, þ.a.l. er ekkert athugavert við þetta. Enda væri það ansi hart ef einhver lekur lagi inn á netið þá væri hann búinn að eyðileggja fyrir höfundum og flytjendum. Go Silvía og rústaðu bara Eurovision :)

    8. febrúar 2006 kl. 16:32 GMT | #

  27. Guðmundur svarar:

    Silvía Nótt er klikkuð. Hef líka heyrt að hún sé skyld Gísla Hvanndal, þannig að það kemur kannski ekki á óvart.

    19. febrúar 2006 kl. 19:51 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)