Partí 11110
Það tilkynnist hér með að ég býð til afmælisteitis, heima hjá mér á laugardaginn kemur (10. desember). Húsið opnar kl 20.30. Léttar veitingar í boði.
Þeir sem lesa þetta og vita hvar ég á heima (eða nenna að hafa fyrir því að fletta því upp) eru velkomnir.
Blóm og kransar afþakkaðir. Þeir sem vilja minnast mín eru beðnir að styrkja eitthvað verðugt líknarstarf fyrir jólin.
(P.S. Þessi bloggfærsla byrjaði líf sitt með vinnutitlinn "Tíminn líður hratt á gerfihnattaöld", en ég ákvað svo að það væri kannski aðeins of dramatískt.)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (5)
Kristína svarar:
Engin blóm og engir kransar?
Ok, mér finnst að allir sem koma, megi þá amk. semja eins og eitt stykki ræðu um kappann til að undirstrika ágæti hans og flytja í einni strollu ... eða semja texta um hann við eitthvert þekkt dægurlag, hvernig væri það?
Drengurinn er jú að verða ÞRÍTUGUR!!!
7. desember 2005 kl. 12:55 GMT | #
Már svarar:
Heyrðu góða, nú fer ég bráðum að ritskoða þig. Átt þú ekki að vera að gera eitthvað annað núna en að skrifa komment á bloggsíður, ha? :-)
7. desember 2005 kl. 13:24 GMT | #
Hallur svarar:
Hmmm... mér hefur nú aldrei tekist að eiga í vandræðum með að snúa út úr þekktum dægurlagatextum... mitt vandamál er að ég kemst aldrei neitt...
8. desember 2005 kl. 01:10 GMT | #
Tóró svarar:
Ég nota þennan vettvang til að senda afmælis- og saknaðarkveðjur í gleðskapinn.
Til hamingju með daginn, gamli.
10. desember 2005 kl. 16:39 GMT | #
Magga Leóp. svarar:
Hjartanlega til hamingju með afmælið Már. Mér þykir leitt að hafa ekki getað komið í afmælið þitt. Ég árna þe´r heilla eingu að síður. Magga
11. desember 2005 kl. 10:56 GMT | #