Einfaldur farsími

Skrifað 5. desember 2005, kl. 23:01

Mig langar í Vodafone Simply síma. Sem notendaviðmótshönnuður og sérlegur áhugamaður um þjála og nytsamlega tækni, þá finnst mér að mér beri fagleg skylda til að eiga svona græju.

Eiginlega það eina sem stöðvar mig er að hann er harðlæstur inn á Vodafone símkort sem mér finnst alveg óþolandi dónaskapur. Ég er dyggur viðskiptavinur Tals/Íslandssíma/Vodafone til margra ára, og er alveg tilbúinn að borga aukalega fyrir ólæstan svona síma.

Mér finnst kúkalegt af Vodafone að vilja ekki leyfa mér að nota símtækið mitt með öðrum símfyrirtækjum í neyð. Hins vegar dauðlangar mig í svona einfaldaða símgræju með engum óþarfa fítusum.

Hvað gera bændur nú?

Uppfært: Jibbí! Stína sæta gaf mér VS2 týpuna í jólagjöf og fékk að eiga gamla símann minn í staðinn. Við erum bæði kát - sérstaklega ég! :-)


Svör frá lesendum (13)

  1. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Nú auðvitað fær maður sér bara svona síma og "lagar" svo þennan galla ;)

    5. desember 2005 kl. 23:54 GMT | #

  2. Arnór Bogason svarar:

    Ég hélt að þeir (OgV) væru yfirlýstir hatursmenn læstra símtækja?

    6. desember 2005 kl. 00:44 GMT | #

  3. Hallur svarar:

    áhugavert... notendaleiðbeiningarnar að þessum einfalda síma eru 114 síður. Mig minnir að minn sími (sem er töluvert flókinn) hafi tekið með sér leiðbeiningar upp á 30 - 40 síður...

    6. desember 2005 kl. 05:13 GMT | #

  4. Hrafnkell svarar:

    Hvað áttu við með "í neyð"? Þú getur alltaf hringt í neyðarnúmer s.s. 112 hvar og hvenær sem er, jafnvel án SIM korts í símanum.

    6. desember 2005 kl. 10:21 GMT | #

  5. Tóró svarar:

    Það var einmitt svipaður rökstuðningur hjá mér að baki því að ég fékk mér Nokia 1101 síma um daginn, en leit framhjá öllum myndavéla-vídeó-tónlistar-tækniflipp símum; bara tal og SMS með gamla góða notendaviðmótinu frá 3210 og félögum (sem meistari Norman mun hafa sagt að hafi verið toppurinn í notendavænum farsímaviðmótum).

    Ef eitthvað er virðist þessi Simply-sími við fyrstu sýn flóknari en 1101 síminn, en það er erfitt að átta sig á því af skjámyndunum hversu "intuitiv" valmyndirnar eru í raunverulegri notkun.

    Það verður a.m.k. fróðlegt að fylgjast með hver niðurstaðan verður hjá þér :)

    6. desember 2005 kl. 10:29 GMT | #

  6. = Y = svarar:

    Tjahh... skv. neðangreindri tilvitnun á síðu OgVodafone ættirðu að geta farið með tækið til þeirra og látið þá opna hann fyrir þig:

    Öll símtæki sem seld eru í verslunum og hjá umboðsmönnum Og Vodafone eru opin. Það þýðir að eigandi getur notað simkort frá hvaða símafyrirtæki sem er í símtæki sem hann kaupir hjá Og Vodafone. Eigendur læstra símtækja geta komið með símtækin sín í verslanir Og Vodafone og látið opna þau þeim að kostnaðarlausu.

    Sjá: http://www.ogvodafone.is/index.aspx?GroupId=4023

    Er það ekki bara málið :-)

    6. desember 2005 kl. 11:22 GMT | #

  7. Már svarar:

    Hrafnkell, í neyð er t.d. ef ég þarf að nota símann einhvers staðar þar sem þjónustu Vodafone nýtur ekki við (dæmi sem þjónustufulltrúinn hjá Vodafone benti á í gærkvöldi). Eða ef ég hef ekki efni á að borga himinháan "roaming" taxta í útlöndum.

    Hallur, fjöldi blaðsíðna í handbókinni er enginn mælikvarði á einfaldleika tækja.

    =Y=, þeir segjast ekki geta opnað hann af því Simply sé "þjónusta sem engin önnur símfyrirtæki geti veitt". Sem hljómar náttúrulega eins og hvert annað kjaftæði - því Simply er einfaldlega GSM símtæki og mismunurinn á því og öðrum slíkum virðist bara vera ólíkar valmyndir og hnappar.

    Tóró, góður punktur, en Nokia 1101 er ekki nærri því eins sexý konsept og Simply hönnunin. Svo er hann líka næstum alveg minnislaus:

    Memory

    • Phonebook: up to 50 names and numbers

    Ég þarf að muna miklu fleiri en 50 númer. Simply man 1000.

    Tryggvi, ég sendi hann þá bara til þín í "viðgerð". Ehaggi? ;-)

    6. desember 2005 kl. 11:37 GMT | #

  8. Magga Leóp. svarar:

    Mig langa líka í svona síma. Eina sem ég vil hafa af öllum nýju fídusunum er að geta samþáttað símanúmerin í símanum við adressubókina í tölvunni. Það á að vera hægt með Sympy gegnum USB kapal sem fylgir (samkv. bls. 76) en : "The system requirement is a PC with Windows XP or Windows 2000" Hafiði glóru um það hvort Makkinn nái einhverjum tengslum (þeir vita það ekki hjá Ogvodafone og Apple svarar ekki).

    6. desember 2005 kl. 17:40 GMT | #

  9. Magga Leóp. svarar:

    Smá lesblind Simply átti þetta að vera hjá mér!!! ;)

    7. desember 2005 kl. 02:20 GMT | #

  10. Kristína svarar:

    Mig langar bara að skjóta því að, þó að Már hafi örugglega ekki hugsað sér færsluna svoleiðis, þá á hann þrítugsafmæli nk. laugardag ... og hvað gæti piltinn langað í í afmælisgjöf?

    Hmm, hvað gæti hópur af vinum hans lagt saman í púkk til að kaupa?

    Ps. Öllum boðið í afmælispartý heima hjá okkur í Stangarholti 6 á laugardaginn. Mæting uppúr kl.21, viðeigandi klæðnaðar krafist ... o.s.frv ... hlökkum til að sjá sem flesta.

    Það er bannað að eyða þessu kommenti Már!!!

    7. desember 2005 kl. 10:50 GMT | #

  11. Már svarar:

    Lol, vá hvað þetta kemur hallærislega út. Elska þig Stína. :-)

    7. desember 2005 kl. 12:10 GMT | #

  12. Hrafnkell svarar:

    Minnislaus, skiptir það máli? Geymir bara númerin á SIM kortinu í stað þess að geyma þau í símanum. Nýleg SIM kort eiga að geta geymt slatta af númerum.

    7. desember 2005 kl. 19:44 GMT | #

  13. Már svarar:

    Hrafnkell, jú það er vissulega tæknilega mögulegt að henda reiður á því hvaða gögn farsímatæki vistar í hvaða minnishólfi og hvenær, og hvernig á að bera sig að við að færa téð gög á milli minnishólfa, en það verður hins vegar býsna seint kallað "einfalt" eða "spennandi" umhugsunarefni. :-)

    Hönnun Nokia 3210/5110/etc. símtækjanna er vel þekkt stærð. Ég er spenntur fyrir Simply hönnuninni því hún lítur í fljótu bragði út fyrir að vera fyrsta stóra framfaraskrefið í hönnun einfaldra, handhægra samskiptatækja í hart nær 7 ár:

    • Skýr forgangsröðun á því hvað er mikilvægt.
    • Lykilaðgerðir fá sína eigin takka.
    • Aggressív grisjun á fítusum sem enginn notar.

    7. desember 2005 kl. 21:44 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)