Höfuðfætlan "Pabbinn"

Skrifað 13. nóvember 2005, kl. 23:26

Ein fyrsta höfuðfætlan leit dagsins ljós í dag á meðan ég var í vinnunni. Fyrsta útgáfa innihélt útlimi, augu og nef, en eftir smá samræður við mömmu sína ákvað Garpur, að eigin frumkvæði, að bæta við munni, eyrum, hári, tippi, og tveimur rasskinnum!

Pabbinn

Aðrar persónur sem hann teiknaði voru: "mamman", "Logi Garpur", og "amma" - í tilefni þess að hún var að koma frá Kanada í morgun.

Mamma var beðin að klippa myndina út því honum hafði, að eigin mati, gengið of erfiðlega að klippa hinar persónurnar sjálfur, og svo þurfti náttúrulega að líma alla á svona efnisbúta eins og mamma var að nota í sína handavinnu.

Viðbót: Við enduðum á að taka myndina, smækka hana niður og raða í símunstur sem var svo prentað og silkiþrykkt á peysur, boli og púða sem við gáfum nánustu fjölskyldumeðlimum og einstaka vinum í jólagjöf.


Svör frá lesendum (4)

  1. Þorsteinn Yngvi svarar:

    Hann náði þér glettilega vel. Eina sem skortir er væntanlega mottan sem þú sportar svo glæsilega á myndum í eldri færslu.

    14. nóvember 2005 kl. 18:36 GMT | #

  2. Magga Leóp. svarar:

    Indislegt :o)

    14. nóvember 2005 kl. 19:42 GMT | #

  3. anna svarar:

    Þetta er æðislegt mynd hjá honum :)

    17. nóvember 2005 kl. 19:39 GMT | #

  4. Sigurjón svarar:

    Garpur hefur greinilega mikla hæfileika vegna þess að þessi mynd er skuggalega lík þér (get reyndar ekki dæmt um typpið).

    19. nóvember 2005 kl. 17:50 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)