Jörðin skoðuð með Google Maps
Sem barn gat ég legið tímunum saman yfir gömlum landabréfabókum og drukkið í mig nöfn landa og borga, og afstöðu hlutanna úr lofti. Mér verður stundum hugsað til þess hvað ég hefði gert ef ég hefði haft aðgang að Google kortinu, og velti fyrir mér hvað það verður geðveikt fyrir börnin mín (Garp og stúlkuna ófæddu) að geta gramsað í svona upplýsingum til að læra um veröldina.
Í kvöld fór ég í smá ferðalag. Ég byrjaði hérna heima, en komst fljótlega á flug um heiminn og fann ýmislegt magnað á ferð minni. Ég tók nokkrar myndir...
(Athugið að í flestum tilfellum borgar sig að "zooma" út til að skilja samhengi hlutanna.)
- Flugstöð Leifs Eiríkssonar
- Felubyrgi fyrir herflugvélar "varnarliðsins"
- Hvað er þetta?
- Húsið hennar mömmu í Ely
- Kristur á fjallinu í Ríó
- Eldfjallið Krakatá
- Skriðjöklar á Austur-Grænlandi
- Skeiðarárjökull
- Íbúðahverfi í Kaíró
- Rauðlitað iðnaðarsvæði við höfnina í Tokyo
- Fagurblá mengunarhreinsilón við Bohai flóa í Kína
- Óshólmar Lenu í Norður-Síberíu
- Vatnasvæðin í Norðaustur-Síberíu
- Fraktalamunstur í Himalaya
- Hið ótrúlega landslag sandanna á mörkum Saudi-Arabíu og S-Yemen:
- Snákurinn í frumskóginum
- Manngerði Amazon-snákurinn
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
Sindri svarar:
"Hvað er þetta?" í listanum er gömul saltverksmiðja sem er farinn á hausinn. Bláa klessan þarna við hliðina er enn eitt bláa lónið sem starfsemi Hitaveitu Suðurnesja hefur valdið. Hérna er annað sjónarhorn á þetta.
13. nóvember 2005 kl. 12:41 GMT | #
Freyr svarar:
Líka skemmtilegt hvað er hægt að gera með google maps API-inu. Hérna er skemmtilegt twist á gamla Where in the World in Carmen Sandiego.
13. nóvember 2005 kl. 14:50 GMT | #
Magga Leóp. svarar:
Þegar ég uppgötvaði kortin á Google á sínum tíma var ég föst í marga klukkutíma, daga, vikur, í að skoða og taka myndir. Vá hvað þetta er flott. Það sem heillaði mig mest þá voru jöklarnir á austur Grænlandi - nákvæmlega sami blettur og þú bendir á! Ég er búin að súmma þennan blett upp og klippa myndirnar saman. Þetta er hrein fegurð svona gæsahrollsfegurð - hef ekki fundið fyrir henni lengi. Gaman að þessu :o)
13. nóvember 2005 kl. 14:52 GMT | #
Ágúst svarar:
Sammála! Búinn að gleyma mér þónokkuð oft í svipuðum fíling og þegar ég fletti Atlasinum þegar ég var lítill.
Annars hef ég raunar kynnst praktikalitíunu af þessu líka. Vinkona mín villtist í London og ég gædana hana í gegnum hverfið með maps.google.co.uk.
Og já, mér finnst líka rosalega skemmtilegt að sýna fólki svalirnar á "penthousinu" mínu sem ég leigði í Kaíró :-)
13. nóvember 2005 kl. 21:34 GMT | #
Már svarar:
Ágúst, áttu vísun á svalirnar þínar fyrir okkur?
13. nóvember 2005 kl. 22:30 GMT | #
Birkir svarar:
Þú ætti líka að skoða world wind.
Þeir bjóða upp á að skella öllum heitustu gervihnatta myndunum frá nasa inn í forritið sitt. Magnað að skoða fellibili, skógarelda, þörungablóma og annað slíkt í samhengi á hnattkúlunni.
16. nóvember 2005 kl. 09:53 GMT | #