Karlremba í Kastljósinu
Hvers konar afdalakarlremba er þessi gaur [Sigmundur] í Kastljósinu í kvöld sem talaði við Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra eins og hún væri aumingi.
"Nú misstir þú móður þína aðeins tíu ára gömul, heldurðu að það hafi haft áhrif á þig og gert þig harðari til að takst á við þetta ráðuneyti."
Og svona gekk viðtalið (sá hluti þess sem ég sá) meira og minna út á það hvað það væri nú merkilegt að kona gæti sinnt svona erfiðu jobbi að vera ... *gisp* ... iðnaðarráðherra!
Ég gef öllu jöfnu lítið fyrir pólitík Valgerðar, en svona meðferð er fyrir neðan allar hellur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mér mislíkar við þennan Kastljóssstjórnanda sem spyril.
En, það var kannski einna sorglegast að Valgerður svaraði þessum karlrembulegu spurningum eins og ekkert væri sjálfssagðara. Líklega var hún gersamlega ómeðvituð um meðferðina sem hún fékk.
Meira þessu líkt: Femínismi.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (8)
Ásgeir H svarar:
Sigmundur minnir mig. Hann og Valgerður gerðu ákvörðunina að slökkva á kassanum mjög auðvelda.
3. október 2005 kl. 02:13 GMT | #
Már svarar:
Nei, þetta var ekki Simmi. Mér finnst hann frábær stjórnandi og spyrill. Þetta var 'guttinn' í Kastljósinu - þessi sem er hvað mest strákslegur.
3. október 2005 kl. 06:49 GMT | #
= Y = svarar:
Hann er sonur Gulla í Kögun, þannig að hann er amk. Gunnlaugsson. Eigum við eki bara að giska á Sigmundur?
3. október 2005 kl. 06:59 GMT | #
Már svarar:
Ah... Simmi sem ég fíla heitir líklega "Sigmar", þannig að það getur vel passað að þessi heiti Sigmundur. Auðvelt að rugla þessum nöfnum saman.
3. október 2005 kl. 07:35 GMT | #
Salvör svarar:
Æ, ég er svo glöð að sjá blogg eins og þetta - að ungir karlmenn á Íslandi séu svona meðvitaðir. Fylgist ekkert sjálf með íslenskum fjölmiðlum þessa daganna enda á Spáni.
3. október 2005 kl. 09:12 GMT | #
Magga Leóp. svarar:
Hann heitir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Svakalega er ég fegin að "lesa" þig segja þetta Már. Sá reyndar ekki téð Kastljós en hef oft og iðulega fundist hann verulega sekur um karlrembu og áberandi hvað hann talaði lítið við konur og ef hann gerði það þá var það vandræðalegt. Mér hefur fundist hann sérstaklega í kompaníi við Sigurð gera Kastljósið að einhverju "við strákarnir" einkahúmor sem ég haf ekki haft húmör fyrir. Ég er nýbúin að ræða þetta við hann via e-mail og sé ekki betur en hann hafi tekið sig á og nú alla vega hefur konuviðmælendum fjölgað til muna. Kastljós sl. föstud. var til dæmis frábært hjá honum.
3. október 2005 kl. 22:35 GMT | #
Hr. Svavar svarar:
Ég vil nú leyfa mér, í efasemdapælingu minni, að skjóta á það að Valgerður hafi lagt blessun sína góðfúslega yfir spurningarnar fyrirfram og jafnvel stungið einhverjum að og útilokað aðrar. Mér finnst Kristján engu að síður mesta karlremban og bigotinn sem situr í þessum stólum. Maðurinn telur ekkert þess virði að ræða það, sé það ekki inni á hans áhugasviði eða á einhvern hátt "viðurkennt." T.d. talar hann um teiknimyndasögulistina sem barnabækur.
3. október 2005 kl. 22:39 GMT | #
Maggabest svarar:
Dúllan mín! Mikið ertu fínn að sjá svona. Þetta sjá fæstir, og við kvenmenn erum svo vanir rembu að stundum sjáum við þetta ekki einu sinni sjálfar heldur svörum bara samviskusamlega. "Pabbi lét okkur stelpurnar gera allt jafnt og stráka"... (og það útskýrir af hverju ég er iðnaðarráðherra í dag sko...).
Það er ekki alltaf einfalt að vera kvenmaður, maður...
4. október 2005 kl. 22:11 GMT | #