Rödd frambjóðandans
Honum liggur hátt rómur. Viðkunnagleg rödd samt. Kunnugleg eftir langar samverustundir.
Hún berst milli hæða gegnum opið stigahol. Há og hvell. Stjörnurödd. Vön því að vera í miðju athyglinnar, og kann ekki alveg að vera utan hennar.
Greinilega allt í fullu sving á nýju skrifstofunni með legókubbaborðinu sem býður gesti velkomina þegar þeir koma í dyragættina, eins og til að segja þeim að maðurinn með röddina gleymi sko ekki velferð barnanna.
Brandarar fljúga, skoðanir fljúga, léttvægar ákvarðanir teknar. Röddin í algjörum forgrunni. Og svo þessi tilkynning, með sömu háu stjörnuröddinni: "ÉG ÆTLA AÐ FARA AÐ PISSA NÚNA"
.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (5)
Tóró svarar:
Ég geri fastlega ráð fyrir að þetta sé byggt á sannsögulegum atburðum í nágrenni þínu, en óneitanlega minnir þetta á pissumiða Bush...
(Og með pissumiða á ég ekki við afsláttarmiða fyrir pissu...)
(Sem mér finnst alltaf jafn fyndið að skrifa með tveimur essum)
22. september 2005 kl. 14:08 GMT | #
Tóró svarar:
Ég hafði velt því fyrir mér að útskýra nánar pissumiða Bush, en fannst að þar sem ég hafði séð þetta á nokkrum stöðum á vefnum hlytu allir aðrir að hafa séð þetta...
(Og svo var ég ekki viss hvernig ég ætti að setja inn link með Markdown rithætti).
En málið snýst um miða sem Bush skrifaði á fundi hjá Sameinuðu Þjóðunum og laumaði til Gondolesa Rice og var gómað af ljósmyndara. Sjá t.d. frétt BBC og örlítið beinskeyttari útleggingu
23. september 2005 kl. 11:12 GMT | #
Már svarar:
Þó það sé ekki sagt frá því, þá virkar líka að gera gammeldags HTML vísanir. (Þ.e.a.s. HTML er skilgreint sem leyfilegur ritháttur undir Markdown. :-)
23. september 2005 kl. 18:35 GMT | #
Már svarar:
Þetta er að sjálfssögðu byggt á sannsögulegum atburðum.
Mér fannst mjög gott að vita að Gísli Marteinn þarf líka stundum að pissa eins og ég.
23. september 2005 kl. 22:10 GMT | #
Zato svarar:
Ja hérna, ég hélt að þetta væri lýsing á matarboði hjá þér og það hafi verið Garpur sem höndlað ill að vera ekki miðpunktur athyglli foreldra sinna og sagði þessa setningu.
Ég hlóg dátt þegar að ég fattaði að það var verið að tala um fullorðna maneskju.
25. september 2005 kl. 09:41 GMT | #