Tölvupóstur - afsökunarbeiðni
Ég hef synd að játa: Ég er næstum alveg hættur að lesa persónulegan póst sem sendur er á netfangið mar-hjá-anomy-punktur.net.
Óábyrgt? Já... Ókurteist? Já... Ástæða? Spammerarnir unnu.
Með samstillu átaki tveggja frábærra spamvarnar-lausna (önnur á póstþjóninum og hin í póstforritinu) er mér tæknilega gerlegt að finna þessi örfáu réttmætu skeyti inn á milli (flest þeirra a.m.k.), en það breytir því ekki að það eitt að opna póstforritið er fyrir löngu orðið algjörlega niðurdrepandi - og það síðasta sem ég nenni að gera þegar ég kem heim eftir langan og þreytandi vinnudag.
Ég fæ bókstaflega vægt kvíðakast bara við tilhugsunina.
Undanfarið hef ég (hálf-ó)meðvitað notað það að fresta lestri á spammi prívat tölvupósti til að koma öðrum hlutum í verk hér heimavið (sbr. Structured Procrastination).
Eftir helgi mun ég koma mér upp nýju netfangi (verður hér eftir þekkt sem "netfang gleðinnar") sem ég mun gæta eins og sjáaldurs auga míns og passa að komist ekki í hendurnar á Vondu körlunum.
Ég mun til að mynda ekki:
- birta það óbrenglað á vefnum
- senda póst gegn um það á neina póstlista
- skrá það á neina póstlista
- nota það við neinar "innskráningar" á vefsíður.
- senda póst með því til fólks sem ég þekki ekki nægilega vel til að treysta til að smitast ekki af vírusum (margir vírusar leka upplýsingum úr addressubókum póstforrita fólks til Vondu karlanna).
Ég mun kynna nýja netfangið með einum eða öðrum hætti eftir helgi, og í leiðinni leitast við að grafa upp ólesin skeyti send á núverandi netfang og svara þeim.
Núverandi netfang (hið gamla góða) mun áfram verða virkt, en ég mun halda áfram að lesa það sjaldan og illa.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (9)
Jósi svarar:
Hvaða póstforrit/server ertu að nota? Ég skrifa addressuna mína út um hvippinn og hvappinn á netinu og fæ ca. 3-4 spam framhjá filterum á viku. Hversu mikið sleppur til þín?
Ég nota spamvarnirnar hans Bjarna á klaka og póstforritið Mail sem fylgir með MacOS stýrikerfinu.
josi@klaki.net
9. september 2005 kl. 03:03 GMT | #
Birgir Baldursson svarar:
Gæti ChoiceMail verið svarið? Ég veit náttúrlega ekkert hvort þú notar Windows.
9. september 2005 kl. 03:10 GMT | #
geimVEIRA svarar:
Ég hef verið dugleg að nýta mér klögunarþjónustu sem Verslunarráð Bandaríkjanna starfrækir. Ég hef líka klausu inn á síðunni þess efnis að ég muni kvarta yfir óumbeðnum sölupósti og peningaþvættispóstum. Þetta tel ég vera að svínvirka. Ég hef ekki fengið neinn ruslpóst í fleiri mánuði.
Þú forwardar með headerum á spam@ftc.gov
http://www.ftc.gov/spam/
9. september 2005 kl. 07:44 GMT | #
Valdís svarar:
Hérna vil ég mæla óhikað með því að forwarda öllum pósti á yfir á GMail. Spam sían þar er alveg frábær, er að grípa svona 1000 skeyti yfir mánuðinn hjá mér. 1-2 skeyti á viku sleppa í gegn en ef ný tegund af spammi fer að koma þá er hægt að kenna síunni að þekkja það. Hafðu endilega samband ef þig vantar invite.
9. september 2005 kl. 09:38 GMT | #
svansson svarar:
Ég hef verið að nota gmail undanfarið - hann virðist eitthvað hafa komist vondu kallanna, en ruslpóstsían á honum virðist alveg svínvirka - það fer allt í spamfolderinn.
9. september 2005 kl. 09:59 GMT | #
Salvor svarar:
Ég er búin að gefast upp á mörgum netföngum, salvor@ismennt.is er bara ruslakista spammara og á vinnupóstfangið mitt salvor at khi.is þá fæ ég daglegan skammt af rússneskum ruslpósti.
Gmail addressuna mína gæti ég að skrá hvergi nema ég treysti algjörlega viðkomandi, ég skrái hana samt á marga póstlista en þá póstlista sem eru mjög sérhæfðir - ég hef notað gmail frá því það kom og það er frábært þannig.
9. september 2005 kl. 10:47 GMT | #
Hrafnkell svarar:
ég tek undir að forwarda öllum pósti á gmail netfang og nota gmail sem póstforrit. Í gmail geturðu sett reply-to addressuna á gamla netfangið. Ég fæ einhver hundruð spam á mánuði og fá þeirra sleppa í gegn, ekkert sem böggar mig.
9. september 2005 kl. 11:10 GMT | #
Már svarar:
"Einhver hundruð spam á mánuði"? og "ca. 3-4 spam framhjá filterum á viku"? HAHAHAHAHA... (móðursýkishlátur) Ég talaði við Egil vin minn í gær og hann sagðist skilja mig - hans spamvandamál er reyndar margfalt stærra en mitt. Við grétum á öxlinni á hvor öðrum í smá stund.
Gmail kemur sterklega til greina sem nýtt póstforrit - þakka hugmyndina.
Ég vil að lokum þakka öllum sem hafa bent mér (hér og annars staðar) að nota Mail frá Apple. Ég veit að Apple er best í heimi (nú sem fyrr), en ég á PC vél, og á fjárlögum heimilisins er ekki gert ráð fyrir kaupum á rándýrri Macintosh tölvu.
13. september 2005 kl. 22:17 GMT | #
Kjartan svarar:
Ég er einn af þeim sem nota Gmail og forwarda öllum netföngum þangað. Gmail er líka farið að bjóða upp á að customizera "From" addressuna þannig þú getur sent frá öllum netföngunum þínum hvort heldur sem er í gegnum Gmail viðmótið eða því póstforriti sem þú notar dagsdaglega.
Spam vandamál mitt afmarkast við ca 3000 - 3500 "spöm" á mánuði og hefur Gmail tekist að skera það niður í 0-3 á dag sem eru sýnileg.
Gangi þér vel með lausnina :-)
15. september 2005 kl. 14:18 GMT | #