Færslur sunnudaginn 7. ágúst 2005

Kl. 22:17: Leiðréttist 

Fyrir mistök birtist í Fréttablaðinu síðasta föstudag, eftirfarandi fyrirsögn neðst á forsíðu:

"Hvalveiðimenn segja hrefnuna skorta æti"

Leiðrétt fyrirsögn er:

"Hvalveiðimenn segja hrefnuna beinlínis grátbiðja þá að skjóta sig"

Nánari upplýsingar veitir Palli.

Í öðrum fréttum: Aron Ýmir Friðriksson (4 ára) segir að pabbi sinn sé sterkasti maður í heimi. Satt og sannað.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð

Kl. 16:03: Pabbahlutverkið 

"Og varðandi Helgarpabbapakkann, þá finnst mér hann ómögulegur. Ég ætla ekki að vera einhver sparipabbi sem er alltaf geðveikt skemmtilegur og það er svona hálfgert frí að heimsækja hann. Gera eitthvað skemmtilegt um helgar, fara í húsdýragarðinn og bíó og svoleiðis sjitt. Ég vil vera eðlilegur og venjulegur pabbi sem urrar á morgnanna, ráfar hálfsofandi fram í eldhús og smyr nesti allt of seinn á fætur, drekkandi kaffi á boxerunum á meðan Dagbjört staulast ennþá syfjaðri fram og maular á hrökkbrauði með osti. Ég vil ekki vera glansmynd eða blekking, heldur raunverulegur pabbi. Það er munurinn. Dagbjört verður að upplifa pabba sinn sem eðlilega manneskju, en ekki sem 'weekend retreat.' Lífið er ekki þannig."

Rétt hugarfar! Gangi þeim vel.

Varanleg slóð

Kl. 15:51: Orðræðan 

"Nú hafa stóriðjuhysteríumenn komið nýrri skilgreiningu á hryðjuverki inn í heimsmynd mína. Anórakkaklæddir aktívistar hengjandi fána og hlekkjandi sig við vinnuvélar... Hryðjuverkamenn. Hryðjuverk. Terroristar sem hengja sig upp í krana! Reyðfirðingar geta aldrei aftur gengið um göturnar án ótta við að aktívisti hlaupi hjá og hengi jafnvel borða á vegg!!! Ímyndið ykkur skelfinguna sem þetta fólk þarf að búa við."

Góður punktur

Sendu þitt svar | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í ágúst 2005

ágúst 2005
SunMán ÞriMið FimFös Lau
  1. 2. 3. 4. 5. 6.
7. 8. 9. 10. 11. 12. 13.
14. 15. 16. 17. 18. 19. 20.
21. 22. 23. 24. 25. 26. 27.
28. 29. 30. 31.      

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)