Að af-fokka Google stillingarnar

Skrifað 6. júní 2005, kl. 22:26

Um daginn var ég kvikindi og bjó til hrekkjavísun á síðuna hjá Google.com, sem gerði það að verkum að allir sem smelltu fengu sjálfkrafa kolbilaðar leitarstillingar. Kjarninn í færslunni átti að vera hvað Google eru miklir slóðar að skilja svona hrekkjaleiðir eftir galopnar.

Svo gleymdi ég alveg að blogga aftur og leiðrétta stillingarnar, og fattaði það ekki fyrr en í gærkvöldi þegar Stína mín spurði mig hvort ég vissi hvers vegna Google gæfi henni bara eina leitarniðurstöðu, sama hvaða leitarorð hún slægi inn. Arg! Úbs!

Allir sem hata mig fyrir þennan hrekk smelli hér. Þessi hlekkur lagar allt: setur Ensku sem sjálfgefið tungumál, leitar að síðum á öllum tungumálum, birtir 20 niðurstöður per síðu, slekkur á "Safe Search"o.s.frv.

Annars má líka alltaf laga þessa hluti með því að fara á stillingasíðuna hjá Google, eða með því að eyða öllum smákökum úr vafranum sínum.


Svör frá lesendum (7)

  1. Sigurjón svarar:

    Ég ætla að koma yfir á skrifborðið þitt í fyrramálið og slá þig í hnakkann..

    7. júní 2005 kl. 00:31 GMT | #

  2. Erna svarar:

    Djö.... Og ég sem hélt að Google hefðu eitthvað verið að breyta hjá sér, skildi ekki af hverju ég þrufti að fara og breyta þessu.... Gott samt að fá skýringuna áessu =)

    7. júní 2005 kl. 02:40 GMT | #

  3. Bjarni Rúnar svarar:

    Híhí...

    En er það bara ég, eða er "smellið hér" tengillinn þinn vitlaus? Mér sýnist hann vísa bara aftur á hrekkjafærsluna.

    7. júní 2005 kl. 12:16 GMT | #

  4. Erna svarar:

    Já, mér leið bara eins og kjána sem verið var að gera grín að að hafa fallið fyrir sömu blekkingunni tvisvar... En þetta hefur a.m.k. kennt mér varúð í tenglaásmellingum ;)

    7. júní 2005 kl. 12:21 GMT | #

  5. Már svarar:

    Arg, ég er klaufi. Ég er búinn að laga vísunina. Sorrí :-(

    8. júní 2005 kl. 07:15 GMT | #

  6. SiggiSveinn svarar:

    Ég er ekkert einn um að hafa fattað strax að fara á stillingarsíðuna, er það nokkuð?

    13. júní 2005 kl. 14:32 GMT | #

  7. Már svarar:

    Ekki einn, en örugglega í minnihluta þó, Siggi. :-)

    15. júní 2005 kl. 07:44 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)