Firefox 1.0.4 - öryggisuppfærsla
Vinur minn nafnlausi hugleysinginn (hann kynnti sig að lokum og reyndist vel þekktur) getur glatt sig við það að það er komin ný öryggisuppfærsla af Firefox, útgáfa 1.0.4. sem lagfærir einmitt þessa öryggisholu sem fjölmiðlar hafa undanfarna daga blásið upp sem eitthvað miklu meira en hún raunverulega er.
Firefox-notendur geta uppfært með því að smella á rauða uppfærslutáknið efst í hægra horni vafrans, sbr skjámynd:
![]()
Þeir sem ekki hafa enn sett upp Firefox, en vilja prófa að nota öruggan vafra sem er uppfærður hratt og vel þegar holur finnast, geta sótt nýjustu útgáfu Firefox á Mozilla.org.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (2)
Gunnar svarar:
Ég er með 1.03 og uppfærslumerkið er grænt hjá mér en virkar samt rétt, þ.e. segir mér að uppfæra í 1.04. Annar böggur? ;P Og auðvitað er ég að uppfæra, vildi bara benda fólki á að treysta ekki litnum...
12. maí 2005 kl. 10:11 GMT | #
Sigurjón svarar:
Mér finnst að við ættum nú að taka rækilega í þennan nafnlausa aumingja...
Már, hittu mig á horninu, við skulum afgreiða þetta í snatri :)
14. maí 2005 kl. 00:58 GMT | #