Firefox 1.0.4 - öryggisuppfærsla
Vinur minn nafnlausi hugleysinginn (hann kynnti sig að lokum og reyndist vel þekktur) getur glatt sig við það að það er komin ný öryggisuppfærsla af Firefox, útgáfa 1.0.4. sem lagfærir einmitt þessa öryggisholu sem fjölmiðlar hafa undanfarna daga blásið upp sem eitthvað miklu meira en hún raunverulega er.
Firefox-notendur geta uppfært með því að smella á rauða uppfærslutáknið efst í hægra horni vafrans, sbr skjámynd:
![]()
Þeir sem ekki hafa enn sett upp Firefox, en vilja prófa að nota öruggan vafra sem er uppfærður hratt og vel þegar holur finnast, geta sótt nýjustu útgáfu Firefox á Mozilla.org.
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum