Upplestur á vefsíðum í Opera og Safari

Skrifað 10. maí 2005, kl. 00:41

Norski vafrinn Opera 8.0 býður upp á einfalda raddstýringu og upplestur á vefsíðum. Lesröddin er skýr skýr og les Ensku bara þó nokkuð vel. Hins vegar virðist Operan býsna treg til að lesa síður sem eru markaðar sem önnur tungumál.

Þessari virkni í Opera virðist hins vegar ekki ætlað að þjóna þeim sem eru blindir, því lesvélin lætur ekkert vita um hvað eru tilvísanir á aðrar síður, hvað eru myndir, hvaða málsgreinar eru stök í númeruðum lista, eða hvað eru tilvitnanir... Lesvirknin er aðallega "sniðug".

Seinnipartinn í dag benti Palli mér á að nýjasta útgáfan af MacOS ("Tiger") kemur með upplestrarvirkni sem virkar með Safari vafranum til að lesa vefsíður upphátt.

Nú hef ég ekkert skoðað þessa nýju útgáfu af Makka kerfinu, en samkvæmt svarhalanum á bloggfærslunni sem Palli benti á, þá er upplestrarvirknin í Safari sama marki brennd og í Operunni -- meira sniðug en nothæf.

Það verður samt spennandi að sjá hvort þetta þróast eitthvað, og hvort verður hægt að tengja íslenska talgerfla við annað hvort þessara kerfa.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)