Sjaldan er ein báran stök

Skrifađ 4. maí 2005, kl. 19:03

Ţegar ég kom heim međ Garpi í dag var enn eina ferđina einhver leiđindapúki sem finnst hann eiga rétt á ađ nota garđinn okkar sem göngustíg, búinn ađ trađka niđur og kengbeygja vírgirđinguna sem ég strengdi fyrir sinn hvorn endann á garđinum til ađ stöđva traffíkina. Ţađ var greinilega ekkert óvart viđ ţennan átrođning. Ađ auki ţurfti viđkomandi ekki ađ leggja nema tveggja metra krók á leiđ sína til ađ fara framhjá girđingunni og gegn um garđinn viđ hliđina, en sá er galopinn í báđa enda eins og okkar var áđur.

Eftir ađ hafa gert viđ girđinguna og leikiđ smá viđ Garp í sólinni, lá leiđin inn en ţá beiđ mín ţar bréf frá Sýslumanni međ fjárnámsbođun, vegna einhverra óskilgreindrar kröfu Tollstjóra frá ţví í maí 2003. Ţessi bođun eru klárlega eitthvađ klúđur í kerfinu, en af gefinni reynslu lendir ţađ á mér ađ vinda ofan af kerfisgörninni sem liggur frá Skattstjóra, gegn um Tollstjóra alla leiđ til Sýslumanns, og bera skilabođ og kvittanir milli ţesara ţriggja stofnana ţví kerfiđ sem ţćr starfa eftir er svo ţurrt og ómennskt ađ ţar getur ekki nokkur mađur ađ sent fax, eđa hringt eitt símtal (hvađ ţá meira) til ađ liđka um lausn svona mála.

Ég fór í gegn um allan ţann pakka sumariđ 2003 en ţá hafđi ég trassađ, í fyrsta (og eina!) skiptiđ, ađ skila VSK skattskýrslum á réttum tíma og fékk áćtlađ á mig međ hótunum. Ţađ var bjánalegur trassaskapur hjá mér og ég átti ţví í raun alveg skiliđ ţađ vesen allt saman, en ég stóđ skil á öllu en-to-og-tre! og gekk frá mínum málum og skilađi skattinum mínum á réttum tíma eftir ţađ. (Ég hćtti í fríslansinu fyrir nokkru síđan.)

Ađfararbeiđnin sem ég fékk inn um lúguna í dag (fylgiskjaliđ sem fjárnámsbođunin er byggđ á) er dagsett fyrir ţađ ferli allt saman, og undirrituđ af Eyrúnu K. Geirsdóttur sem var einmitt sá fulltrúi Tollstjóra sem ég talađi viđ sumariđ 2003 og stađfesti ađ mín mál vćru komin í lag síđar um haustiđ.

Svo er frídagur á morgun og ég ţarf ţví ađ sitja á mér fram á föstudag ađ fá ađ vita um hvađ ţetta helv. mál snýst og međ hversu mörgum möppudýrum ég ţarf ađ sćnga til ađ fá friđ.

Svo er ég glorsoltinn!

Uppfćrt Eins og mig grunađi ţá reyndist fjárnámsbođunin klúđur hjá Sýslumanni


Svör frá lesendum (3)

  1. Salvör svarar:

    Sá ađ ţú varst ađ tala um wordpress Wordpress er flottasta bloggkerfiđ, ég hef samt ekki ţorađ ađ skipta fyrir fullt og allt strax, eftir allan ţennan ama sem ég hafđi af MT kerfinu.

    Hér er wordpress sem ég er ađ prófa: http://www.samkoma.net/blogg/

    4. maí 2005 kl. 20:27 GMT | #

  2. Ágúst svarar:

    Góđur endurskođandi er gulls ígildi ;)

    4. maí 2005 kl. 23:19 GMT | #

  3. Már svarar:

    Ég lét einmitt endurskođanda sjá um skattskýrsluna mína ţetta ár. Sömuleiđis árin fyrir og eftir. Endurskođendur eru agjört möst fyrir svona viđskiptafóba eins og mig.

    5. maí 2005 kl. 00:48 GMT | #

Ţessum svarhala hefur veriđ lokađ. Kćrar ţakkir til ţeirra sem tóku ţátt í umrćđunni.


 

Flakk um vefsvćđiđ



 

Nýleg svör frá lesendum

  • credit loans (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Baltytierry-online (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Mara25Olsen (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiđarvísir handa hrćddri ţjóđ)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiđarvísir handa hrćddri ţjóđ)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiđarvísir handa hrćddri ţjóđ)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir ţetta skjal

(Atriđin í listanum vísa á ákveđna kafla ofar á síđunni.)