Sjaldan er ein báran stök
Þegar ég kom heim með Garpi í dag var enn eina ferðina einhver leiðindapúki sem finnst hann eiga rétt á að nota garðinn okkar sem göngustíg, búinn að traðka niður og kengbeygja vírgirðinguna sem ég strengdi fyrir sinn hvorn endann á garðinum til að stöðva traffíkina. Það var greinilega ekkert óvart við þennan átroðning. Að auki þurfti viðkomandi ekki að leggja nema tveggja metra krók á leið sína til að fara framhjá girðingunni og gegn um garðinn við hliðina, en sá er galopinn í báða enda eins og okkar var áður.
Eftir að hafa gert við girðinguna og leikið smá við Garp í sólinni, lá leiðin inn en þá beið mín þar bréf frá Sýslumanni með fjárnámsboðun, vegna einhverra óskilgreindrar kröfu Tollstjóra frá því í maí 2003. Þessi boðun eru klárlega eitthvað klúður í kerfinu, en af gefinni reynslu lendir það á mér að vinda ofan af kerfisgörninni sem liggur frá Skattstjóra, gegn um Tollstjóra alla leið til Sýslumanns, og bera skilaboð og kvittanir milli þesara þriggja stofnana því kerfið sem þær starfa eftir er svo þurrt og ómennskt að þar getur ekki nokkur maður að sent fax, eða hringt eitt símtal (hvað þá meira) til að liðka um lausn svona mála.
Ég fór í gegn um allan þann pakka sumarið 2003 en þá hafði ég trassað, í fyrsta (og eina!) skiptið, að skila VSK skattskýrslum á réttum tíma og fékk áætlað á mig með hótunum. Það var bjánalegur trassaskapur hjá mér og ég átti því í raun alveg skilið það vesen allt saman, en ég stóð skil á öllu en-to-og-tre! og gekk frá mínum málum og skilaði skattinum mínum á réttum tíma eftir það. (Ég hætti í fríslansinu fyrir nokkru síðan.)
Aðfararbeiðnin sem ég fékk inn um lúguna í dag (fylgiskjalið sem fjárnámsboðunin er byggð á) er dagsett fyrir það ferli allt saman, og undirrituð af Eyrúnu K. Geirsdóttur sem var einmitt sá fulltrúi Tollstjóra sem ég talaði við sumarið 2003 og staðfesti að mín mál væru komin í lag síðar um haustið.
Svo er frídagur á morgun og ég þarf því að sitja á mér fram á föstudag að fá að vita um hvað þetta helv. mál snýst og með hversu mörgum möppudýrum ég þarf að sænga til að fá frið.
Svo er ég glorsoltinn!
Uppfært Eins og mig grunaði þá reyndist fjárnámsboðunin klúður hjá Sýslumanni
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum