Sexí rödd
Mikið svakalega þykir mér Norah Jones hafa sexí rödd. Þetta er eitthvað sem ég tók eftir alveg sérlega eftir áðan.
Smekkur minn fyrir alls kyns hlutum er sífellt að þróast og þroskast. Ég hugsa að fyrir bara nokkrum árum síðan hefði ég ekki getað sagt að mér þætti "rödd" sexy - a.m.k. ekki svona ein og sér.
Sömuleiðis hefði ég ábyggilega ekki sagt að mér þætti leikkona eins og Monica Bellucci alveg endalaust glæsileg og heillandi. Það skrýtnasta er kannski það að ef ég ætti að nefna einhvern einn hlut sem mér þykir mest heillandi við hana, þá mundi ég nefna hendurnar. Ekki handleggina, heldur bara hendurnar. Veit ekki af hverju. Þær bara heilla mig.
Annars er ég svo ósköp einfaldur að mér þykja alls kyns konur sem líkjast á einhvern hátt henni Stínu minni alveg ótrúlega heillandi. Oftar en ekki er um að ræða konur sem hefðu ekki höfðað neitt sérstaklega til mín áður en við Stína kynntumst og byrjuðum saman. Fyrst þegar ég upplifði þetta þá fór þessi allt að því Pavlovska skilyrðing í taugarnar á mér, en í dag finnst mér þetta bara sniðugt.
Ætli það hafi ekki allir sínar sérviskur?
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (2)
Ágúst svarar:
Sexy rödd? Bara sexy yfirhöfuð!
8. október 2004 kl. 23:45 GMT | #
maggabest svarar:
Rödd skiptir gífurlegu máli. Ég er með raddfetish. Russel Crow hefði t.d. aldrei verið talin svona flottur eftir Gladiator ef hann hefði ekki þessa fallegu rödd. Steve Bushemi á aldrei eftir að teljast kynþokkafullur af því hann er með mjög ósexí rödd. Rödd er vætal.
18. október 2004 kl. 23:33 GMT | #