Hvernig fílar fólk ShopUSA.is?
Hefur einhver reynslu af ShopUSA.is? Er þetta sniðug þjónusta? Getiði sagt mér eitthvað um þetta?
Hefur einhver reynslu af ShopUSA.is? Er þetta sniðug þjónusta? Getiði sagt mér eitthvað um þetta?
Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.
(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)
Svör frá lesendum (6)
Freyr svarar:
Ég hef notað þetta einu sinni til að kaupa batterí í vídeókameruna mína. Fann einhverja verslun á netinu og lét senda til ShopUSA útibúinu í USA. Gekk vel fyrir sig, ekkert vandamál. Borgaði um 7þús fyrir þetta (með flutningskostnaði, toll, vask, etc. etc.) en hefði þurft að borga tæp 20þús fyrir í búð hér á landi.
2. september 2004 kl. 01:06 GMT | #
Már svarar:
En hvað hefðirðu borgað fyrir að panta þetta sjálfur beint, í stað þess að fara í gegn um ShopUSA?
2. september 2004 kl. 01:18 GMT | #
Sverrir svarar:
Ef að viðkomandi verslun sendir beint til Íslands þá er ástæðulaust að nýta sér það ekki en oftar en ekki þá eru talsverð takmörk á því hvað er hægt að senda út fyrir BNA og þá held ég að ShopUSA nýtist best.
Keypti mér linsu um daginn($260 með s&h) og lét senda hana hingað heim og sparaði það mér 6000 kr miðað við að fá hana í gegnum ShopUSA.
2. september 2004 kl. 08:52 GMT | #
Freyr svarar:
Það sem Sverrir sagði. Þessi búð sem ég keypti batteríið mitt hjá sendi ekki út fyrir BNA. Það voru fleiri búðir að selja svona batterí sem að hefði sent það til Íslands og ég hefði fengið ódýrara heldur en að kaupa úti í búð, en voru samt dýrari heldur en þessi búð sem sendi ekki til Íslands.
2. september 2004 kl. 09:59 GMT | #
Salvör svarar:
Ég ætla að fá mér ipod við tækifæri...þ.e. þegar ég verð búin að ákveða hvað ég geri við svoleiðis.... mér var bent á að það væri ódýrara eða sama verð hjá shopusa og í fríhöfninni.
ég er mjög ánægð með að svona þjónusta sé í boði, þetta eykur val kaupenda og væntanlega samkeppni seljenda
2. september 2004 kl. 11:27 GMT | #
Hrafnkell svarar:
Ég skoðaði þetta mikið fyrir nokkrum mánuðum í sambandi við kaup á hljóðkerfi frá USA. Niðurstaðan var að það var talsvert ódýrara að flytja það inn sjálfur, meiraðsegja með UPS hraðflutningum. Það fyndna er að TVG Zimsen þjónustar bæði UPS og Shop USA. Í báðum tilfellum gerðu þeir tollskýrsluna fyrir mig og önnuðust flutninginn. Eini munurinn frá mér séð var heimilisfangið sem ég gaf upp við kaupin.
Aðrir sem ég hef talað við hafa svipaða sögu að segja en benda þó á að fyrir vörur í vissum tollflokki og eru þungar m.v. rúmmál geti ShopUSA verið góð leið.
Eins er ekki hægt að kaupa allar vörur út fyrir USA. Það var t.d. tilfellið með hátalara sem ég var að spá í fyrir kerfið. Seljandinn vildi að ég skipti við Evrópskan umboðsmann (og þar voru þeir svínslega dýrir).
4. september 2004 kl. 20:34 GMT | #