Smá um nýtt Mbl.is
Mbl.is opnaði nýjan vef í dag. Til hamingju!
Flestar síður eru kórrétt XHTML 1.0 Einstaka villur hér og þar, en engar alvarlegar. HTMLið er töflulaust og tiltölulega merkingarbært og laust við óþarfa framsetningarupplýsingar. Rammarnir (e. "frames") eru loksins, loksins horfnir og í stað þeirra kemur stór fastsett auglýsing í hægri spássíu sem helst ávallt sýnileg þótt skrunað sé niður síðuna. Einfalt og eðlilega leyst.
Þó eru nokkur atriði sem mættu betur fara:
CSSið á nýja Mbl.is skilgreinir leturstærðir í
pxog kemur þannig í veg fyrir að notendur Internet Explorer geti valið að stækka letrið með sjálfvirkum hætti. Til er einföld lausn á þessu og full ástæða fyrir Mbl.is að nota hana.Í upphafi hverrar síðu er eftirfarandi texti sem blindir/sjóndaprir notendur þurfa að hlusta á, og notendur frumstæðra textavafra þurfa að fletta yfir:
Ath.: Þessi vafri styður ekki fyllilega CSS-stílsnið (stylesheets), sem notuð eru til að stjórna útliti síðunnar. Vefsíður á mbl.is eru hannaðar fyrir vafra, sem styðja stílsnið og JavaScript, þótt einnig sé hægt að nota þær að vissu marki í öðrum vöfrum.
Þessi texti er í besta falli óþarfur, og í versta falli dónaskapur. Ef fólk er að nota gamlan vafra, þá er líklega góð ástæða fyrir því, og ekki í verkahring einnar virðulegustu fréttastofu landsins að skipta sér að því. ...og hvað eiga þeir við með "að vissu marki" sé síðan nothæf í öðrum vöfrum? Hví bara "að vissu marki"?
Þótt HTMLið sé töflulaust og vinstri- hægri- og miðjudálkur skilgreindir með CSS reglum, þá nýttu forritarar nýja Mbl.is samt ekki tækifærið að setja meginmálið (efni miðjudálksins) fremst í síðuna, þegar hún er skoðuð án CSS. Þetta þýðir að notendur sem lesa síðurnar án CSS þurfa að fletta yfir mikið magn valmynda og undirvalmynda og vísana á aukasíður, áður en þeir komast að kjarna málsins - kaldhæðnislegt eins og það kanna að virðast. Algjört lágmark væri að bjóða notendum upp á falda vísun "beint í meginmál síðunnar".
Þegar maður stækkar letrið á síðunni (í vöfrum sem geta það, t.d. Mozilla Firefox, eða Safari) þá þarf ekki að stækka mikið áður en hvíta aðalvalmyndin efst á síðunni brotnar í tvær línur og felur á bak við sig undirvalmöguleikana fyrir þann efnisflokk. Þetta er pínu klúðurslegt.
Að flestu öðru leyti þykir mér breytingin til batnaðar. Útlitið er að vísu íhaldssamt en er greinilega einungis ætlað að vera rökrétt framhald af gamla útlitinu. Mbl.is virðist ekki heldur ætla að falla í sömu gryfju og nýr Vísir.is gerði á dögunum, þ.e. að opna nýjan vef og ráða svo ekki við traffíkina fyrstu dagana og vikurnar, og vera endalaust á hliðinni vegna forritunarvillna og skorts á prófunum. A.m.k. virðist nýr Mbl.is vera léttur í hleðslu og viðbragðsfljótur, og eigendum sínum og hönnuðum til sóma (sjö-níu-þrettán).
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (15)
Hallur svarar:
Ég er um margt sammála þér í þessum skrifum. En það er þó eitt sem fer verulega í taugarnar á mér þegar verið er að hanna svona fréttavefi og þetta á sérstaklega við um mbl.is og það er að engin mörk virðast vera sett á hversu háar auglýsingar mega vera heldur bara breiddin. Eins og er núna þá fyllir nb.is ekki út í breiddina en er full há. En Landsbanka auglýsingin fyllir út í breiddina en er allt of há. Mér finnst að þetta eigi að vera max 80px á hæð því annars missir maður af því sem er að gerast neðan við auglýsingarnar.
1. september 2004 kl. 12:18 GMT | #
JBJ svarar:
Prufaðu eitt... (amk í Firefox). Resizaðu gluggann þinn í svona 640 eða svo á breidd, flash auglýsingin fer YFIR scrollbarinn sem hverfur!
Að auki þá skrollast auglýsingin ekki þannig að litlir skjáir sjá bara efsta hluta hennar þó síðan sé skrolluð.
1. september 2004 kl. 12:36 GMT | #
Einar svarar:
En svakalega er hann stór...
Web Page Speed Reoport fyrir mbl.is
Global Statistics Total HTTP Requests: 67 Total Size: 282595 bytes
Object Size Totals Object type Size (bytes) HTML: 51408 Images: 84320 Javascript: 13043 CSS: 18345 Multimedia: 8
1. september 2004 kl. 13:57 GMT | #
Már svarar:
Svar við öllum hér að ofan:
Mbl.is eru að sjálfssögðu með margar, stórar og þungar auglýsingar. Mig grunar að vandamálin sem JBJ lýsir séu bundin við einhverja ákveðna útgáfu af firefox sem hann notar, allavega tekst mér ekki að framkalla þetta hjá mér.
Öllu verri en allar auglýsingarnar finnast mér vera hvernig Mbl.is heldur að þeir geti orðið ríkir á að læsa gömlum fréttum. Hver kaupir tímabundinn aðgang að 10 gömlum Mbl fréttum á tæpar 700 kr.?
1. september 2004 kl. 16:54 GMT | #
Steini svarar:
Þetta er rétt hjá JBJ helv. auglýsingin flýtur yfir scrollbarinn í 800*600. :-) Sommamabits... það er vont.
1. september 2004 kl. 19:23 GMT | #
Gunnar svarar:
Ég er með Mozilla Firefox 0.9.3 og auglýsingin til hægri fery yfir scrollbarinn. Þannig að það virðist ekki vera gamall Firefox heldur nújasti sem er með þennan bögg.
1. september 2004 kl. 19:28 GMT | #
Már svarar:
Mér tókst ekki að framkalla þessa teiknivillu á tölvunni í vinnunni minni, en hérna heima gerist þetta í báðum tölvunum. Allar keyra þessar tölvur nýjustu útgáfurnar af Firefox. Önnur af heimatölvunum er með Windows 2000 og Flash 6 uppsett, en báðar hinar eru með XP og útgáfu 7 af Flash.
Það er öruggt að Mbl getur leyst þetta vandamál með einhverjum einföldum breytingum á kóðuninni á síðunni.
1. september 2004 kl. 19:37 GMT | #
Tóti svarar:
Humm... finnst ykkur þessi breyting vera til batnaðar?
Burtséð frá validasjónum staðla og uppröðun á síðunni, þá gerði ég heiðarlegar tilraunir til að lesa fréttir í dag og tókst ekki.
Endalaust lúppandi flassauglýsingar í sterkum litum sem eltu mann þvældust fyrir og drógu sífellt athyglina frá fréttunum sem ég var að reyna að lesa. Ekki lengur hægt að fá yfirlit yfir allt á einum skjá. Sigh. Þar fór það.
Af hverju setja þessir fréttavefir auglýsingunum engin takmörk um æpandi liti - eða amk. setja reglur um að lúppur séu ekki leyfðar nema on mouseover?
1. september 2004 kl. 23:00 GMT | #
Haukur Már Böðvarsson svarar:
Skemmtileg lausn til að losna við auglýsingabannera á mbl.is
Náið í þetta CSS: http://www.bodvarsson.com/temp/userContent.css
FireFox: Settu þetta í c:\Documents and Settings#notandanafn#\Application Data\Mozilla\Firefox\Profiles\default.###\chrome\ möppuna hjá þér, endurræstu firefox og tékkaðu svo á mbl.is
Internet Explorer: Veljið Tools > Internet Options > General flipann... smellið á takkann Accessibility neðst í honum > hakið í "User style sheet", "format document using my style sheet" > browseið á nýja style sheetið og voila!...
Tékkið á þessu :)
2. september 2004 kl. 09:12 GMT | #
Steini svarar:
Tóti - er þetta ekki bara keis af ADD, smá athyglisbrestur hjá þér? :-)
En ég er reyndar alveg sammála. Mér finnst óþægilegra að lesa vefinn eftir breytingar en fyrir.
2. september 2004 kl. 13:22 GMT | #
Baldur Kristinsson svarar:
Sem kerfisstjóri og forritari á mbl.is vil ég þakka fyrir góða umsögn, Már - og fyrir ágætar ábendingar!
Ég vil líka þakka JBJ fyrir ábendinguna varðandi skrunslána í Firefox. Þetta er augljóslega böggur í Firefox, sem einungis kemur í ljós þegar allt þrennt er fyrir hendi: (1) position: fixed, (2) föst breidd og (3) flash. Það var hægt að leysa þetta með því að taka út fasta breidd fyrir nýrri vafra (en halda henni fyrir IE6, sem þarf á henni að halda af einhverjum furðulegum ástæðum).
2. september 2004 kl. 17:37 GMT | #
Geir svarar:
Þegar ég sá nýtt útlit mbl fyrst fékk ég svokallað Nielsen-flog en svo nefnast ofsakennd líkamleg viðbrögð við lélegu notagildi vefsíðu. Líklega var það allt blikkið.
Slappast er hins vegar það sem þeir kalla "ÁHUGAVERT" í slánni hægra megin. (Ég er samt ekki viss um að þetta sé nýr fítus).
Þar eru hlekkir sem í fyrstu virðast vera einhverskonar meðmæli ritstjórnar vefsins en við betri skoðun reynast vera keyptir hlekkir, rétt eins og flash borðarnir. Hlekkirnir bera yfirskrift á borð við "VELGENGNISÞREPIN ?", "Viltu hjálpa barni!", "TECHNOSPORT Heilsurækt" og "Herbalife sögur".
Synd að þeir skuli gengisfella vefinn sinn með þessum hætti. Ætli þetta sé fullkomlega löglegt að skilin verði svona óljós milli efni sem ritstjórn ber ábyrgð á og efni sem er aðkeypt? Veit Styrmir af þessu?
3. september 2004 kl. 09:30 GMT | #
Andri Sig svarar:
Langar að bæta því við að í Firefox 0.9.3 á Mac færast margar auglýsingarnar úr staða þegar ég scrolla og fara yfir fréttirnar sem veldur því að ég get ekki með nokkru móti notað vefinn. Enda er ég hættur að gera það nema í gegnum RSS.
15. september 2004 kl. 01:33 GMT | #
Freyr svarar:
Blikk á mbl.is?
http://freyr.fresnik.com/dagbok/2004/09/14/
15. september 2004 kl. 21:46 GMT | #
Baldur Kristinsson svarar:
Andri Sig: Þetta er böggur í Flash-stuðningi í Firefox á OS X. Auglýsingarnar flytjast rauner ekki til, heldur "gleymir" Firefox að teikna aftur upp hluta skjárins eftir að maður er búinn að skruna upp eða niður, þannig að eftir verða "draugar" úr Flash-myndunum. Það er ekki búið að leiðrétta villuna í 1.0PR, svo það þýðir lítið að uppfæra ennþá. Notaðu Camino eða Mozillu - eða settu inn FlashBlock extension.
24. september 2004 kl. 17:07 GMT | #