Hvernig fílar fólk ShopUSA.is?
Hefur einhver reynslu af ShopUSA.is? Er þetta sniðug þjónusta? Getiði sagt mér eitthvað um þetta?
Hefur einhver reynslu af ShopUSA.is? Er þetta sniðug þjónusta? Getiði sagt mér eitthvað um þetta?
Mbl.is opnaði nýjan vef í dag. Til hamingju!
Flestar síður eru kórrétt XHTML 1.0 Einstaka villur hér og þar, en engar alvarlegar. HTMLið er töflulaust og tiltölulega merkingarbært og laust við óþarfa framsetningarupplýsingar. Rammarnir (e. "frames") eru loksins, loksins horfnir og í stað þeirra kemur stór fastsett auglýsing í hægri spássíu sem helst ávallt sýnileg þótt skrunað sé niður síðuna. Einfalt og eðlilega leyst.
Þó eru nokkur atriði sem mættu betur fara:
CSSið á nýja Mbl.is skilgreinir leturstærðir í px og kemur þannig í veg fyrir að notendur Internet Explorer geti valið að stækka letrið með sjálfvirkum hætti. Til er einföld lausn á þessu og full ástæða fyrir Mbl.is að nota hana.
Í upphafi hverrar síðu er eftirfarandi texti sem blindir/sjóndaprir notendur þurfa að hlusta á, og notendur frumstæðra textavafra þurfa að fletta yfir:
Ath.: Þessi vafri styður ekki fyllilega CSS-stílsnið (stylesheets), sem notuð eru til að stjórna útliti síðunnar. Vefsíður á mbl.is eru hannaðar fyrir vafra, sem styðja stílsnið og JavaScript, þótt einnig sé hægt að nota þær að vissu marki í öðrum vöfrum.
Þessi texti er í besta falli óþarfur, og í versta falli dónaskapur. Ef fólk er að nota gamlan vafra, þá er líklega góð ástæða fyrir því, og ekki í verkahring einnar virðulegustu fréttastofu landsins að skipta sér að því. ...og hvað eiga þeir við með "að vissu marki" sé síðan nothæf í öðrum vöfrum? Hví bara "að vissu marki"?
Þótt HTMLið sé töflulaust og vinstri- hægri- og miðjudálkur skilgreindir með CSS reglum, þá nýttu forritarar nýja Mbl.is samt ekki tækifærið að setja meginmálið (efni miðjudálksins) fremst í síðuna, þegar hún er skoðuð án CSS. Þetta þýðir að notendur sem lesa síðurnar án CSS þurfa að fletta yfir mikið magn valmynda og undirvalmynda og vísana á aukasíður, áður en þeir komast að kjarna málsins - kaldhæðnislegt eins og það kanna að virðast. Algjört lágmark væri að bjóða notendum upp á falda vísun "beint í meginmál síðunnar".
Þegar maður stækkar letrið á síðunni (í vöfrum sem geta það, t.d. Mozilla Firefox, eða Safari) þá þarf ekki að stækka mikið áður en hvíta aðalvalmyndin efst á síðunni brotnar í tvær línur og felur á bak við sig undirvalmöguleikana fyrir þann efnisflokk. Þetta er pínu klúðurslegt.
Að flestu öðru leyti þykir mér breytingin til batnaðar. Útlitið er að vísu íhaldssamt en er greinilega einungis ætlað að vera rökrétt framhald af gamla útlitinu. Mbl.is virðist ekki heldur ætla að falla í sömu gryfju og nýr Vísir.is gerði á dögunum, þ.e. að opna nýjan vef og ráða svo ekki við traffíkina fyrstu dagana og vikurnar, og vera endalaust á hliðinni vegna forritunarvillna og skorts á prófunum. A.m.k. virðist nýr Mbl.is vera léttur í hleðslu og viðbragðsfljótur, og eigendum sínum og hönnuðum til sóma (sjö-níu-þrettán).
(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)
Nýleg svör frá lesendum