Skrifađ 2. júlí 2004, kl. 08:35
- Ég hef haft of mikiđ ađ gera undanfariđ til ađ getađ bloggađ međ góđri samvisku. Ţegar ég hef haft tíma til ađ blogga ţá hef ég annađ hvort veriđ dauđţreyttur og flatur, eđa Klaki í einhverju fýlukasti.
- Eldhúsinnréttingin er núna 98% tilbúin, og alveg svakalega fín ţótt ég segi sjálfur frá. Jibbí! Eftir er ţó: Kítta kringum borđplötuna, mixa sökkullistann, skrúfa handfang á ţrjár hurđar, og skrúfa og kítta spjald fyrir innskotiđ í veggnum undir gluggasillunni.
- Stína átti afmćli síđustu helgi. Viđ fórum í bíltúr á Nesjavelli, Selfoss, Stokkseyrarbakka (humar!), Bláa lóniđ og höfđum ţađ nćs öll ţrjú allan daginn. Á morgun býđur Stína til afmćlispartís heima. Ţađ verđur fjör.
- Ţađ má vera ađ viđ, Stína og Garpur, förum í hvalaskođun í kvöld međ hópi af gömlum MH vinkonum. Spennandi ađ fá loksins aftur smá sjávarloft í lungun.
- Á eftir fer ég í viđtal hjá Japanska sendiráđinu út af umsókninni. Ég hef enn ekki haft tíma til ađ lesa mér til um hvernig viđskiptalegum samskiptum Íslands og Japans er háttađ. Ţađ mun ađ öllum líkindum há mér í viđtalinu.
- Nćsta fimmtudag koma mamma og Steve í langa helgarheimsókn. Gaman!
- Ţriđjudaginn eftir ţađ, kemur Inga mamma Stínu heim til Íslands.
- Svavar bloggađi í fyrradag alveg gríđargóđa kover-útgáfu af laginu Ég elska ţig, eftir "Hamfarann" Gunnar Jökul Hákonarson.
Svör frá lesendum (1)
Ingamammastínu svarar:
Nújćja! Engin húrrahróp á eftir minni línu, ha? Mér fannst síđasta langa helgarheimsóknin mín algert afrek og hefđi mátt hrópa ţrisvar gamangamangaman fyrir mér ţá (enda held ég ađ ég hafi gert ţađ sjálf). Mér taldist ađ Edmonton-Ottawa-Boston-Keflavík-Reykjavík-Keflavík-Boston-Las Vegas-Edmontonferđin teldi á bilinu 10-12ţús. km.... Iss, ferđin frá Ely til Reykjavíkur tekur sennilega orđiđ skemri tíma en rútuferđin frá Siglufirđi.
En svona í alvöru: Mér finnst leiđinlegast ef ég missi alveg af Völu og Steve. Međ hvađa flugi fara ţau til baka? Er ekki sjéns ađ viđ getum hist í morgunmat eđa bröns? Ég verđ komin í bćinn um kl. 8, eđa svo...
4. júlí 2004 kl. 17:57 GMT | #