Spennandi tímar framundan í sumar
Verkefnin framundan í íbúðinni:
Leggja gólfefni (dúk?) á stigaganginn í sameigninni.
er búinn að hringja í Kjaran hf og maður þaðan ætlar að koma í heimsókn einhvern næstu daga og gera mér verðtilboð.
Hvaða fleiri fyrirtæki koma til greina í svona?
Kaupa uppþvottavél og gufugleypi.
Gufugleypirinn þarf að vera kolafilter gleypir. Ég vil hafa hann nettann, ekki hvítann, og hann skal ganga mest ca. 15 cm upp í skápinn fyrir ofan.
Uppþvottavélin skal vera með klæddri hurð, a.m.k. hálfklæddri, og sýnilegi parturinn má ekki vera hvítur. Ég vil enga fítusa. Bara down-to-earth venjulega uppþvottavél með sem lengstri endingu.
Ég kíkti í Heimilistæki í dag og skoðaði úrvalið hjá þeim. Leist í fljótu bragði ekki nægilega vel á.
Staðir til að skoða á: Raftækjaverslun Íslands, Bræðurnir Ormsson, Expert. Einhverjir fleiri??
Steypa og spartla í restina á sárinu eftir veggskurðinn í eldhúsinu.
- Mundi gaf mér einhver gömul múrarahúsráð í innflutningspartíinu í vetur, sem ég man ekki lengur hver voru. Er búinn að senda honum tölvupóst.
Rústa út neðri skápunum og föstu borðplötunni í eldhúsinu, setja upp nýju skápaeiningarnar sem við keyptum fyrir jól (sjitt hvað tíminn líður). Færa vaskinn til hliðar við eldhúsgluggann og gera ráð fyrir uppþvottavélinni þar við hliðina.
Fá Ragga vin okkar til að tengja allt rafmagnsdraslið. (Fá Ragga í heimsókn punktur. Það er allt oft langt síðan við höfum séð þau skötuhjúin, hann og Móu!)
Klára að mála lokaumferðina á loft og veggi í eldhúsinu/holinu.
Ég vonast til að ná að klára megnið af þessu núna í júní. Það verður fróðlegt að sjá hvort það gangi eftir.
Eins og reikniglöggir lesendur hafa eflaust áttað sig á, þá hefur ekkert mjög mikið gerst í eldhúsmálunum hjá okkur síðan stuttu eftir að við fluttum inn. Fyrst komu nefnilega jólin og fjölskyldurnar, og svo smá letikast eftir þau, og svo vinnutörn dauðans - fyrir og eftir frí - þannig að ég er fyrst núna að komast í home improvement gírinn aftur.
...en mikið djö er það gaman! :-)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (1)
Tóró svarar:
Þegar þú verður búinn að koma upp gufugleypinum gæti ég vel þegið smá sérfræðiráðgjöf ;) Ég keypti svoleiðis græju þegar ég flutti inn (fyrir rúmlega tveimur árum) og hún (hann?) er enn í geymslunni!
Ég sé hins vegar fram á að ég verði að drífa græjuna upp áður en ég flyt til útlandsins. Ég get varla boðið mínum verðandi leigjendum upp á gamla garminn.
Bestu stuðkveðjur í framkvæmdahaminn!
21. júní 2004 kl. 10:14 GMT | #