Er kæra Tunga.is á hendur RÚV grín?

Skrifað 10. júní 2004, kl. 15:18

Hvað er málið með þessa kæru á hendur RÚV? Maður veltir fyrir sér hvort kærandinn, Tunga.is sé full alvara með þessu eða hvort þetta sé bara brandari? Það er a.m.k. ýmislegt broslegt þarna. Til að mynda þetta í HTML kóða síðunnar:

<meta name="GENERATOR" content="Microsoft FrontPage 5.0">
<meta name="ProgId" content="FrontPage.Editor.Document">

(Mér finnst þetta einungis fyndið því ég er vefforritunarsnobbari, og FrontPage er Fisher-Price leikfangaborvél vefsmíðaheimsins.)

Og svo er slagorðið "Faglegur fjölmiðill" skondið í ljósi þess að hvergi á vefnum kemur fram neitt um hver ábyrgðarmaður hans er eða ritstjóri, en einhver hefði ætlað að eðlileg teldist að veita lesendum slíkar upplýsingar - ekki síst þegar miðillinn er jafn "lýðræðislegur" og raun ber vitni.

Varðandi ástæður lögsóknarinnar stendur eftirfarandi á Tunga.is:

"Tunga.is has been closed as the Icelandic government has made it impossible to run a privately owned media company on the Internet."

Ha? Hvað á maðurinn við? Hvað með þá tölfræði sem kemur fram á þessari síðu?

Getur verið að kæran á hendur RÚV sé bara ódýr auglýsingabrella (og geipilega "fagleg"!) hjá þessum metnaðarfulla fjölmiðli, eða örvæntingarfull tilraun til að trekkja að traffík af því það hafi ekki gengið neitt allt of vel hingað til?

A.m.k. ekki ef maður miðar við þetta:

(Til samanburðar má nefna að sömu tölur fyrir þessa litlu bloggsíðu mína (mar.anomy.net) eru: Technorati: 47 vefsvæði; Google: vísanir frá nokkurhundruð síðum; Alexa.com: sæti nr. 696.460.)

Þetta er allt hið athygliverðasta...

Á forsíðu vefsvæðisins er að lokum finna eftirfarandi yfirlýsing:

"Í júní 2003 var málið sent til Samkeppnisstofnunar og umboðsmanns Alþingis og hefur Tunga.is stöðvað alla uppbyggingu á Íslandi uns full niðurstaða fæst ..."

Þarna kemur það upp úr krafsinu að Tunga.is er í raun og veru fjölþjóðlegt fjölmiðlastórfyrirtæki?

Plís segið mér að þetta sé allt saman eitt stórt grín! :-)


Svör frá lesendum (11)

  1. Gneistinn: Tunga.is

    "Þetta er undarleg "frétt" sem ég var að lesa á Vísi: Fréttamiðilinn tunga.is sem undanfarna mánuði hefur flutt fréttir og fréttatengt efni á netinu er hættur starfsemi. Segir í orðsendingu á heimasíðu miðilsins að hann hafi orðið að gefast upp..." Lesa meira

    10. júní 2004 kl. 15:42 GMT | #

  2. Einar Örn svarar:

    Jammm, ég skil þá vel.

    Ég er líka að bugast undan samkeppninni við RÚV.is. :-)

    Annars finnst mér mesta snilldin við þessa síðu vera þessar random Microsoft auglýsingar. Nú nota ég ekki FrontPage, en er þetta einhver standard fítus í FrontPage? Það er, fyrir hver 100 orð sem þú skrifar, þá kemur ein Microsoft auglýsing. Það væri allavegana snilld :-)

    10. júní 2004 kl. 15:51 GMT | #

  3. Tóró svarar:

    Þetta er flottur vefur!

    Mér þóttu sérlega áhugaverðar dagsetningarnar á ensku fréttunum: "24.2003", "23.2003" o.s.frv.

    Ég skil satt best að segja ekkert í jafn prúðum pilti og þér Már, að gera með þessum hætti lítið úr jafnmetnaðarfullum og FAGLEGUM vefmiðli (sem m.a.s. er kominn með vísi að Íslendingavef) !!!

    10. júní 2004 kl. 17:00 GMT | #

  4. Sindri svarar:

    Handbragðið á tunga.is ber þess sterk merki að þar hafi töluvert geðfatlaðir menn verið að verki. [Meinhæðni er í lagi, en reynum að hafa hana á góðlátlegu nótunum plís. - Már]

    10. júní 2004 kl. 18:42 GMT | #

  5. egill svarar:

    Sýnist tunga.is gera lítið annað en að afrita efni af öðrum vefjum og birta hjá sér.

    Þetta er nú meira helv. ruglið. Hefði trúað þessu í Ameríku, en andsk. hafi það.

    Afsakið tungu-bragðið :)

    10. júní 2004 kl. 18:59 GMT | #

  6. Þórhallur W. Jónsson svarar:

    Ég held að sonur Ágústar Einarssonar, samfylkingarmanns og kvótaeiganda hafi verið með þennan vef. Var í viðtali við Hallgrím á Útvarpi sögu á sínum tíma. Margt vitrænt sem hann sagði. Auðvitað er það rétt að ríkið getur bara ekki ákveðið að gera eitthvað eftir behag eins og opna vefmiðil.

    10. júní 2004 kl. 20:07 GMT | #

  7. Gunnar svarar:

    Nei, en RÚV var ekki beint stofnað í gær :) Og mörg ár síðan þeir fóru að birta efni á vefnum, spurning hvort eigi að skilgreina hvaða efni má og má ekki birta í svona aðstæðum?

    En hvað með textavarp.is, á þetta líka við um það?

    10. júní 2004 kl. 23:29 GMT | #

  8. Bragi svarar:

    Jamm veit varla hvort maður eigi að opna sig með vitneskju mína um þennan vef. Fyrir um einu og hálfu ári voru allir listar í framboði til stúdentaráðs boðaðir í viðtal við herrann sem var með tunga.is. Þeir einu sem mættu vorum við Háskólalistafólk og okkur var hálf brugðið þegar við sáum húsakynnin. Þetta var semsagt ein lítil skrifstofa sem hefur varla verið meira en sjö til átta fermetrar. Sá er tók viðtalið var lítill sveittur maður sem hefur eflaust lært að hnýta bindið garðyrkjuskólanum. Viðtalið var tekið á litla myndbandsupptökuvél og eflaust var því varpað á netið. Það sem mér datt strax í hug þegar ég heyrði af kærunni á hendur RUV, maðurinn er sár og reiður út í sitt eigið vanhæfi til að reka fjölmiðil en getur ekki sætt sig við að bera sjálfur ábyrgðina. Hann bendir á hinn og kennir honum um. Eitthvað sem krakkar gera þegar þeir eru sárir út í sjálfan sig.

    11. júní 2004 kl. 11:58 GMT | #

  9. Hrafnkell svarar:

    Mér finnst athugasemdin um FrontPage Fisher Price sér í lagi ómálefnaleg og fyrir neðan belti.

    ...svona eins og að svara rútubílstjóra sem gerir athugasemdir við vegagerðina vegna hraðahindrana með því að hann eigi ekki að vera að ybba sig því hann kunni ekki að skipta um tímareim í bílvélum.

    11. júní 2004 kl. 13:34 GMT | #

  10. Már svarar:

    hmm... Nei Keli, þetta er meira eins og að svara kappakstursbílstjóra sem kvartar yfir að hinir keppendurnir séu að svindla, og benda honum á að kannski gengi honum betur ef hann keyrði ekki á fótstignum kassabíl.

    En já, ég er vefforritunarsnobbari, og já öll þessi færsla mín er eitt stórt neðanbeltisskot.

    11. júní 2004 kl. 13:59 GMT | #

  11. Hrafnkell svarar:

    Mér finnst samlíking mín mun betri en þín. Það er vel hægt að gera alvöru vefsíður í frontpage, amk alvöru í augu almennings sem er ekki að spá í aðgengileika og túlkunarhæfni HTML kóðans. Vefsíður sem koma skilaboðum, skoðunum og fréttum til skila.

    11. júní 2004 kl. 14:05 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)