Gjuggíborg.com og vefir fyrir þroskahefta
Peepo.com er vefsvæði með tilvísunum á leiki, þrautir, og skemmtilegar heimasíður fyrir fólk með alvarlega námsörðuleika. Síðan fær 6 stjörnur af 6 mögulegum hjá hinum breska "Foundation for People with Learning Disabilities", en þar eru tilvísanir á fleiri svipaða vefi.
Í uppáhaldi hjá mér eru músarbendilsleikirnir á Peepo.com, t.d. "Náðu íkornanum" og Laufblaðaleikurinn. Skuggalega einfaldir en samt svo heillandi í einfaldleika sínum.
Litli strákurinn minn er rétt tæplega 2 ára. Það má líta á það sem ákveðna námsörðugleika í sjálfu sér. Ég mun prófa að fara með honum inn á þessa síðu og sjá hvort hann fíli ekki að elta íkorna og vesen.
P.S. Að gefnu tilefni vil ég taka skýrt fram að þessi færsla er ekki á neinn hátt framhald af þeim pólitísku umræðum sem hafa átt sér stað á þessari síðu síðustu daga.
P.P.S. Ég fann þetta í hliðardálknum hjá Mark Pilgrim, ásamt vísun á vefsvæði sem er með stuttar og langar útgáfur af öllum síðum. Í flestum tilfellum fannst mér einföldu síðurnar læsilegri. Spurning hvort hinum sé ofaukið? :-)
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (1)
Ingibjörg Stefánsdóttir svarar:
Sæll Már. Ég skoða oft vefinn sinn þar sem ég sit hér í Danaveldi. Oftar en ekki er ég að hlusta á rás2 á sama tíma. Þá kemur upp gluggi til vinstri á skjánum til hliðar við annað efni sem maður er að skoða. Mér finnst það svolítið íronískt að vefurinn þinn er ef ekki sá eini, þá a.m.k. einn örfárra heimasíða sem erfitt er að lesa þegar þessi Windowsgluggi birtist á síðunni. Mér hefur nefnilega skilist að þú sért sérfræðingur í að búa til aðgengilegar heimasíður ;) Þess vegna þætti mér vænt um annað hvort að fá ráð við því hvernig ég get brugðist við þessu (finnst upplagt að kíkja á nokkrar bloggsíður á meðan ég hlusta á fréttirnar og VIL geta gert hvort tveggja í einu) nú eða að þú finnir leið til þess að hægt sé að lesa síðuna þína en ekki aðeins það sem er lengst til hægri á henni, þó að verið sé að hlusta á útvarp.
Með bestu kveðjum
10. júní 2004 kl. 12:32 GMT | #