Er kæra Tunga.is á hendur RÚV grín?
Hvað er málið með þessa kæru á hendur RÚV? Maður veltir fyrir sér hvort kærandinn, Tunga.is sé full alvara með þessu eða hvort þetta sé bara brandari? Það er a.m.k. ýmislegt broslegt þarna. Til að mynda þetta í HTML kóða síðunnar:
<meta name="GENERATOR" content="Microsoft FrontPage 5.0">
<meta name="ProgId" content="FrontPage.Editor.Document">
(Mér finnst þetta einungis fyndið því ég er vefforritunarsnobbari, og FrontPage er Fisher-Price leikfangaborvél vefsmíðaheimsins.)
Og svo er slagorðið "Faglegur fjölmiðill" skondið í ljósi þess að hvergi á vefnum kemur fram neitt um hver ábyrgðarmaður hans er eða ritstjóri, en einhver hefði ætlað að eðlileg teldist að veita lesendum slíkar upplýsingar - ekki síst þegar miðillinn er jafn "lýðræðislegur" og raun ber vitni.
Varðandi ástæður lögsóknarinnar stendur eftirfarandi á Tunga.is:
"Tunga.is has been closed as the Icelandic government has made it impossible to run a privately owned media company on the Internet."
Ha? Hvað á maðurinn við? Hvað með þá tölfræði sem kemur fram á þessari síðu?
Getur verið að kæran á hendur RÚV sé bara ódýr auglýsingabrella (og geipilega "fagleg"!) hjá þessum metnaðarfulla fjölmiðli, eða örvæntingarfull tilraun til að trekkja að traffík af því það hafi ekki gengið neitt allt of vel hingað til?
A.m.k. ekki ef maður miðar við þetta:
- Technorati finnur 3 vísanir á hann. Sú nýjasta er
- Google veit af 7 síðum á 3 vefsvæðum sem vísa á hann... (ekki sömu vefsvæði og Technorati)
- Alexa.com áætlar að hann sé í sæti nr. 3.874.397 yfir mest sóttu vefsvæði í heimi.
(Til samanburðar má nefna að sömu tölur fyrir þessa litlu bloggsíðu mína (mar.anomy.net) eru: Technorati: 47 vefsvæði; Google: vísanir frá nokkurhundruð síðum; Alexa.com: sæti nr. 696.460.)
Þetta er allt hið athygliverðasta...
Á forsíðu vefsvæðisins er að lokum finna eftirfarandi yfirlýsing:
"Í júní 2003 var málið sent til Samkeppnisstofnunar og umboðsmanns Alþingis og hefur Tunga.is stöðvað alla uppbyggingu á Íslandi uns full niðurstaða fæst ..."
Þarna kemur það upp úr krafsinu að Tunga.is er í raun og veru fjölþjóðlegt fjölmiðlastórfyrirtæki?
Plís segið mér að þetta sé allt saman eitt stórt grín! :-)
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum