75% óbeit ríkisstjórnarinnar á lýðræðinu

Skrifað 8. júní 2004, kl. 17:28

Pawel á Deiglunni skrifar: 75% vitleysa

"[Krafan um 75% lágmarksþátttöku] letur fólk frá þátttöku í kosningum. Þar með er hugmyndin um leynilegar kosningar líka farin út um gluggann enda er þá farið að skipta meira máli hvort þú kýst en ekki hvað."

Davíð og félagar eru allir mun gáfaðri en svo að þeir setji fram svona hugmyndir óvart. Vakir virkilega fyrir þeim að lágmarka völd okkar almennings til að hafa áhrif í lýðræðislegri kosningu?


Svör frá lesendum (7)

  1. Andri Sigurðsson svarar:

    Það er bara hlægilegt að þessum mönnum skuli detta það í hug að þjóðin eigi eftir að sætta sig við svona bull. Sérstaklega eftir það sem undan hefur gengið. Ég las hluta af tillögum Jóhönnu Sigurðardóttur um svona kosningar og lýst mun betur á þær.

    Til að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu séu bindandi þarf meira en helmingur þeirra sem þátt taka í atkvæðagreiðslunni að greiða atkvæði gegn gildi laganna, þó alltaf þannig að fimmtungur kosningarbærra manna þarf að greiða atkvæði gegn gildi laganna.

    8. júní 2004 kl. 18:04 GMT | #

  2. Már svarar:

    Andri, já þetta hljómar gáfulega hjá henni Jóhönnu. Einfalt, og hvetur til þátttöku.

    8. júní 2004 kl. 19:49 GMT | #

  3. Ragnar svarar:

    Fyrir áhugasama þá má finna stórgóða upprifjun á þjóðaratkvæðagreiðslum Íslendinga í "Baugsmiðlinum Fréttablaðinu" í dag eftir Gunnar Karlsson - Fólk hefði alveg gott af því að lesa þetta áður en það fer að rugla og leyfa öðrum að mynda sér skoðanir :o)

    9. júní 2004 kl. 04:51 GMT | #

  4. Matti Á. svarar:

    Hugmynd Jóhönnu er líka með lágmarksþátttöku, í hennar tilviki er það bara 20% í stað 75%, semsagt bara 55% vitlausari hugmynd svo notast sé við röksemd Pawel :-)

    En ég held að 20-40% séu ágæt mörk. Mér persónulega hugnast það afar illa að 5% þjóðarinnar (svo einhver tala sé nefnd) geti fellt frumvarp vegna þess að 95% stendur á sama.

    9. júní 2004 kl. 11:05 GMT | #

  5. Matti Á. svarar:

    55% gáfulegri er kannski meira í ætt við pistil Pawels.

    9. júní 2004 kl. 11:06 GMT | #

  6. Már svarar:

    Hugmynd Jóhönnu má líkja við kröfu um allt að 40% lágmarksþátttöku (20% hafna lögunum, plús

    9. júní 2004 kl. 11:46 GMT | #

  7. Gunnar svarar:

    Er ekki málið eins og venjulega þegar Dabbi er annars vegar að þetta er partur af plotti? Æsa okkur upp útaf þessu til að smokra einhverju öðru inn og fórna þessu (sem aldrei stóð til að hafa inni) í staðinn?

    Held að lykillinn að því að átta sig á plottunum hans Dabba sé að hugsa djúpt, mjög djúpt.

    10. júní 2004 kl. 00:53 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)