Blásið á kjaftæðið
Ég hvet alla til að lesa það sem Jói skrifar í dag: Blásið á pakkið!
Ég skora ennfremur á Deigluna að vísa á þessa grein hans Jóa, því það er helmingi meira vit í henni en þessu prumpi sem slapp út úr ritstjórnarrassinum þeirra.
Mér finnst það alltaf jafn furðulegt hvernig menn geta andsvítast út í forsetann fyrir að beita loksins þessu eina litla valdi sem hann hefur, en láta óátalið háttalag hæstvirtra alræðisherra: Þegar fram á sjónarsviðið koma fjölmiðlar sem dirfast að mótmæla alræðinu, þá eru sett lög á fjölmiðlana. Þegar forsetinn dirfist að andmæla alræðinu, þá skal stjórnarskránni breytt til að taka valdið af honum.
Sem minnir mann á hérna um árið þegar þjóðhagsstofnun dirfðist að mótmæla einkapípudraumi alræðisins um bullandi uppgang og blóm í haga í miðri niðursveiflunni -- þá var stofnunin bara lögð niður. Eða þegar umboðsmaður alþingis benti á að það væri kannski sniðugra að menn sem gegndu í senn hlutverki framkvæmda- og löggjafarvalds plöntuðu ekki náfrændum sínum í hæstarétt -- þá hringdi alræðið í hann og hótaði að leggja hann niður.
Já og núna er nýjasta alræðislygin sú að í landinu sé, og hafi alla tíð verið, eitthvað sem þeir kalla "þingræði". (Guð hjálpi þér vinurinn.) Að vísu rámar okkur almúgann óljóst í eitthvað tal um lýðræði og Lýðveldið Ísland, en það var víst misminni. Misskilningur. Misritun. Árið 1945 urðum við nefnilega formlega Þingveldið Ísland, og komumst í hóp annara þingveldisríkja hins vestræna heims. ...eða var það kannski Einveldið Ísland? Æi, vá þetta er svo ruglandi. Var það kannski árið 1984?
Hóst
En já, ég sé það núna, burt með þennan helvítis forseta! Hann er alveg að skemma þingræðið í landinu!
Hóst hóst!
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum