Viðskiptavinurinn hefur alltaf rétt fyrir sér

Skrifað 24. maí 2004, kl. 00:37

Úr ónefndu plaggi:

"Óheimilt [er] að veita útvarpsleyfi fyrirtæki sem að hluta eða öllu leyti er í eigu fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu í markaðsráðandi stöðu á einhverju sviði viðskipta."

Eftir því sem ég pæli meira í framangreindri klausu, því gagnslausari finnst mér hún.

Ísland er svo lítið að það er alveg hellingur af "sviðum viðskipta" þar sem eitt fyrirtæki er ráðandi á markaðnum. [Vantar dæmi um slík fyrirtæki.] Margir þessara markaða eru allt að því hlægilega umfangslitlir, en samt mega engin viðkomandi fyrirtækja fjárfesta í ljósvakamiðlum. Hví ekki?

Ennfremur, ef "markaðsráðandi staða" einhvers fyrirtækis er svo algjör að lýðræðinu stafi ógn af hlutabréfaeign viðkomandi fyrirtækis í ljósvakamiðlum, segir það sig þá ekki sjálft að vandinn liggur í "markaðsráðandi stöðunni" sjálfri, og eðlilegast væri að ráðast beint að rótum hans með öðrum aðgerðum - t.d. Samkeppnisstofnun?

Það er vissulega staðreynd að risastórar fyrirtækjasamstæður (oft kenndar við risa-djúpsjávarlindýr) eru varasamar. Þær geta haft mikil áhrif á lýðræðislega fjölmiðlaumræðu í landinu og þaggað niður raddir og sjónarmið sem þeim líka ekki.

Hvernig? Jú, stórfyrirtæki og fyrirtækjasamstæður eru jafnan stærstu og mikilvægustu viðskiptavinir einkarekinna fjölmiðla sem flestir byggja tekjur sínar á auglýsingum.

Ólíkt því sem fjölmiðlarnir reyna að telja okkur trú um, þá eru raunverulegir viðskiptavinir þeirra ekki við lesendur/áhorfendur, heldur eru það fyrirtækin sem kaupa auglýsingapláss í fjölmiðlunum. Vörurnar sem fjölmiðillinn selur eru fyrst og fremst N-þúsund augnpör lesenda/áhorfenda að glápa á ákveðið auglýsingahólf. Við lesendurnir/áhorfendurnir erum aðeins feitir og spengilegir dilkar sem fjölmiðlafyrirtækið hefur smalað saman með skemmtilegum fréttaflutningi eða krassandi afþreygingarefni - og nærvera okkar og athygli er seld hæstbjóðanda.

Ef risastórar fyrirtækjasamstæður (stundum kenndar við djúpsjávarlindýr) ákveða að kaupa ekki auglýsingabirtingar af einkareknum fjölmiðlum sem segja eitthvað sem þeim líkar ekki, þá getur farið illa fyrir viðkomandi fjölmiðlum.

Það hvort fjölmiðillinn er "að hluta eða öllu leyti í eigu" viðkomandi risa fyrirtækjasamstæðu, skiptir þegar á öllu er á botninn hvolft ósköp litlu máli, því það er jú oft meinlausara fyrir starfsmenn fyrirtækja að ergja yfirmenn sína en stærstu og bestu viðskiptavinina. Viðskiptavinurinn hefur nefnilega alltaf rétt fyrir sér.

Því legg ég til að að öllum fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu, og fyrirtækjum sem teljast hluti djúpsjávarlindýrs, verði einfaldlega bannað að kaupa auglýsingapláss í fjölmiðlum!

Er það ekki bara prýðisgóð hugmynd, ha? :-)

P.S. Var ég nokkuð búinn að minnast á hvað mér finnst það afburðabjánalegt af höfundum frumvarpsins að einskorða ákvæði þess svona algjörlega við ljósvakamiðla og dagblöð? Hvort tveggja eru dvínandi form fjölmiðlunar. Hljóð og myndsendingar eru að færast í auknum mæli yfir á internetið, og "dagblöð" eru svo teygjanlegt hugtak. :-)

P.P.S. Ég sé núna að Jósi er búinn að vera sammála mér alveg síðan 11. maí. Fín grein hjá Jósa. :-)


Svör frá lesendum (1)

  1. Jósi svarar:

    Ja, mér er náttúrulega ekki treystandi. Ég er búinn að vera að reyna að fá vinnu hjá Norðurljósum. Þessvegna á ekki að hlusta á mig frekar en að Davíð fari í viðtöl hjá Norðurljósamiðlum.

    24. maí 2004 kl. 17:49 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)