"KISS reglan" og trúarbrögð

Skrifað 23. maí 2004, kl. 22:53

Þegar menn beita rakhníf Ockhams aðeins of fast á lífsgátuna, þá enda þeir oftar en ekki með einhverskonar trúarbrögð í höndunum.

Sú útkoma getur verið gagnleg fyrir viðkomandi, svona prívat og persónulega, en einkar varasöm ef viðkomandi hyggst troða henni upp á annað fólk.

Trúarbrögð geta stundum birst í stjórnmálaskoðunum, og öðrum hlutmengjum stóru lífsgátunnar.


Svör frá lesendum (6)

  1. Matti Á. svarar:

    Prófaðu að yfirfæra þennan texta á eitthvað annað en trúarbrögð, t.d. stýrikerfi, vefhönnun eða stjórnmál..

    Held það liggi í augum uppi að þú lendir í bullandi krísu ef þú gerir það, því þessum rökum er hægt að beita á allt sem skiptir þig máli og ég held þú myndir sjá að þetta er óttalega þreytt og ómálefnaleg gagnrýni.

    Því þú ert í raun að segja, og ekki í fyrsta sinn, að sinnuleysið sé eina rétta skoðunin, a.m.k. þegar kemur að trúmálum. Sem er dálítið merkilegt frá manni sem hefur ansi sterkar skoðanir á ýmsum málum ;-)

    23. maí 2004 kl. 23:08 GMT | #

  2. Már svarar:

    Vertu slakur Matti minn... :-)

    Ég var einfaldlega að reyna að koma í orð hvernig ég skilgreini "trúarbrögð" og hvað ég tel liggja að baki þeim.

    Hugmyndin er að trúarþörf fólks orsakist af ákveðinni uppgjöf gagnvart yfirþyrmandi flækjustigi tilverunnar (þessum endalausu spurningum: "hver er tilgangurinn með þessu jarðlífi?" "Hvar endar alheimurinn?" "Skyldi hann enda..." o.s.frv.) og að trúarbrögðum megi lýsa sem of-einfölduðu svari - þ.e.a.s. því sem sendur eftir þegar rakhnífnum góða hefur verið beitt með aðeins of miklu afli.

    Mér þykir leitt ef ég fór í taugarnar á þér með þessari pælingu.

    24. maí 2004 kl. 01:11 GMT | #

  3. Már svarar:

    P.S. Matti, má ekki einfaldlega líta svo á að val á stýrikerfum, og útfærslur á vefhönnun séu (agnarsmá að vísu) hlutmengi stóru lífsgátunnar? :-)

    Það var m.a. punkturinn hjá mér, að trúarbrögð leynast á ótrúlegustu stöðum og taka á sig ýmsar myndir.

    24. maí 2004 kl. 01:15 GMT | #

  4. Zato svarar:

    Ef það væri eitt hugtak sem ég gæti þurkað út úr mannlegri þekkingu þá væri það trúarbrögð.

    Meats of evil, I say, MEATS OF EVIL !!!!

    ég verð að vera ómálefnalegur :-)

    24. maí 2004 kl. 09:51 GMT | #

  5. Már svarar:

    Zato, ég held að mannfólk hafi mjög sterka tilhneygingu til þess að detta í svona trúarbragðahugsunarmunstur, og það verði aldrei hægt að útrýma öllum birtingarmyndum trúarbragða. Ég held að trúarbrögð séu ekki þekking, heldur frekar hugarfar (hjólför sem hugur fólk festist í) - ýmist viljandi eða óviljandi.

    24. maí 2004 kl. 10:18 GMT | #

  6. Matti Á. svarar:

    Sorry, ég fer kannski í fullmikinn varnarham þegar þessi umræða kemur upp - en ég er slakur ;-)

    24. maí 2004 kl. 12:47 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)