Uppskrift að fríi
Nýafstaðið sumarfrí mitt, Stínu og Garps í hnotskurn. Ferðadagbók á stikkorðaformi. Fyrst og fremst hugsað sem minnispunktar fyrir sjálfan mig (og mína) þegar fram líða stundir.
Sunnudagur 2. maí: Eldsnemma í leigubíl og flugrútu. Eftir morgunmat í Leifsstöð er flogið til Englands. Rúta frá Stansted til Gatwick, gegn um Heathrow. Allt er svo grænt og gróið í Englandi á þessum árstíma. Farangur inn á ódýrt hótel í Horley. Leikið í grasinu í sólinni. Kvöldið tekið snemma inni á hótelherbergi.
Mánudagur 3. maí: Vaknað í morgunmat. Göngutúr og leikvöllur. Skutla á Gatwick. 10 tíma langt flug til Toronto, gegn um Halifax. Kvöldmatur í Rexdale hjá Mónu og George og hluti farangursins skilinn eftir. Vorið er rétt að byrja í Toronto og trén eru rétt að byrja að laufgast (alveg eins og á Íslandi).
Þriðjudagur 4. maí: Vaknað eldsnemma og keyrt út á flugvöll. Flug til Edmonton. Sól og hiti. Bíltúr með Ingu frá flugvellinum. Hittum Ko-leen, Casper og Stefán litla frænda og förum með þeim á leikvöllinn. Rólegheit. Garpur sofnar í gula "bílarúminu" sem Casper lánaði honum.
Miðvikudagur 5. maí: Rólegheit. Hangs. Snjóföl á jörðu og brrrr kalt. Göngutúr í góðu skóbúðina og keyptur geisladiskur (CocoRosie, fínn lókal stelpudúett með mjög lo-fi stíl). Engir skór.
Fimmtudagur 6. maí: Rólegheit. Hangs. Brrr kalt framan af, en hlýtt seinni partinn. Næs að hafa kynnst Stefáni litla frænda og Ko-leen.
Föstudagur 7. maí: Vaknað eld-fokking-snemma í flug aftur til Toronto - með Rob "ava" í farteskinu í þetta skiptið. Hálfkalt. Grill og fjölskylduboð hjá Jessicu og Jeff á Churchill Avenue.
Laugardagur 8. maí: Rólegheit framan af. Kuldi og smá haglél. Heimsókn til Davids. Rob skutlar okkur í brúðkaup Jess og Jeff í Hart House áður en hann fer í flugið til Brasilíu. Athöfn og veisla. Mjög hefðbundið og sætt prinsessubrúðkaup. Garpur eignast (ca. ári) eldri kærustu og skemmtir sér konunglega. Leigubíll í íbúðina hans Davids þar sem við sofum um nóttina.
Sunnudagur 9. maí: Vakn. Rölt niður á College Street og borðaður morgunmatur á litlu kaffihúsi. Uppgötvum á Subwaystöðinni í Kóreuhverfinu að við erum rétt rúmlega einum dollara frá því að vera peningalaus eftir morgunmatinn og stína gleymdi debitkortinu sínu heima í Rexdale. Ég finn internetkaffi í dimmum kjallara á skítugum pöbb og borga afgreiðsludömunni aleiguna (rétt rúmlega einn dollara) fyrir að skjótast í heimabankann í 3 mínútur. Internet Explorer og Windows á kóresku er skemmtilega óskiljanlegt. Næ að millifæra á tóma debitkortið mitt, og taka út pening. Komumst í "brunch" gjafaopnunarpartíið heima hjá Jessicu og Jeff. Þau kvödd og við aftur í Rexdale. Veðrið aðeins skárra.
Mánudagur 10. maí: Rólegheit í Rexdale. Bletturinn sleginn í sólinni. Göngutúr niður að Humber River. Vaðið með Garpi í læknum. Afslöppun og kvöldmatur í bakgarðinum.
Þriðjudagur 11. maí: Bíltúr til Niagra Falls með Nönu og Granpa (Mona og George). Vappað um í sólinni innan um túristana og risahótelin á gljúfurbarminum - peningalaus (gagnslausir ATM kioskar sem taka ekki Debitkort), vatnslaus (gleymdum vatnsflöskunni í bílnum) og með brotna barnakerru. Rákumst fyrir tilviljun á Mónu og George fyrr en ráðgert var og létum það gott heita sem komið var. Keyrt í átt til Niagra on the Lake. Vaðið í ármynninu (maður fann að veturinn lúrði enn í jökulköldu vatninu). Étið og drukkið á gamalli enskri krá (besta Steak and Kidney Pie sem ég hef fengið! og æðislegur heimabruggaður bjór).
Miðvikudagur 12. maí: Strætó og Subway niður á Younge Street - aðal verslunargötu miðborgar Toronto. Rölt um í sólinni, eitt mínípils keypt og lausleg verðkönnun gerð á Canon EOS-300D (Digital Rebel, SLR). Labbað niður að höfninni við enda Younge og ferjan tekin suður á Centre Island, og eftirmiðdeginum eytt þar í að hlaupa í grasinu, róla sér, vaða og busla í vatninu og skoða húsdýragarðinn. Afslöppun og kvöldmatur í Rexdale.
Fimmtudagur 13. maí: Fokking hitamolla. Gengið í Indverska hverfið. Fokking hitamolla. Uppgjöf. Sviti. Kvöldmatur hjá Anne.
Föstudagur 14. maí: Fokking hitamolla. Hangi megnið af deginum með Garpi niðri í kjallara í Rexdale. Þar smá svali. Kvöldmatur hjá Richard og Pierette í King City. Garpur kynnist (og fílar!) Sonyu og Jacques.
Laugardagur 15. maí: Vaknað og pakkað. Hádegismatur með allri stórfjölskyldunni (Rob nýlentur frá Brasilíu). Hópmyndataka í garðinum. Brunað á flugvöllinn í 9 tíma seinniparts-/næturflugið til Englands (Gatwick, gegn um Halifax)
Sunnudagur 16. maí: Lent í Englandi snemma morguns. Rúta upp á Stansted, og lest þaðan beina leið til Ely (norðan við Cambridge). Gott veður: heitt, en bærilegt. Bletturinn sleginn, og Garpur buslar í köldu vatni í bala bakgarðinum á Engine Yard, hjá Völu ömmu og Granddad Steve.
Mánudagur 17. maí: Sólríkur dagur. Göngutúr í Thetford Forest. Afslöppun.
Þriðjudagur 18. maí: Rólegheit. Girðingin í bakgarðinum máluð. Göngutúr á leikvöllinn.
Miðvikudagur 19. maí: Sól. Bæjarferð og skókaup. Jarðarber með rjóma. Tölvustúss fyrir mömmu.
Fimmtudagur 20. maí: Vaknað snemma. Pakkað. "Full English" í Tesco við hliðina á lestarstöðinni. Flogið heim í hádeginu frá Stansted og lent í Keflavík um tvö-leytið. Flugrúta og leigubíll heim.
P.S. Garpur var alveg æðislegur ferðafélagi allan tíman. Hann var undantekningalítið í góðu skapi. Honum gekk alveg ótrúlega vel að aðlagast nýjum svefnvenjum á ólíkum tímabeltum (England +1, Toronto -4, Edmonton -6) og var hinn yndislegasti í öllum flugferðunum - meira að segja í 10 tíma miðdegisfluginu til Toronto. Það var líka voða notalegt að hafa hann sofandi upp í hjá sér í meira en tvær vikur samfleytt, þó það sé líka ósköp þægilegt að vera komin heim með hann aftur sofandi í sínu eigin rúmi.
P.P.S. Hér er minnisblað sem ég prentaði út og hafði í veskinu mínu, en þar komu fram allir ferðatímar og bókunarnúmer fyrir flugin og hótelið.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.